3.2.2010 | 18:45
Ferfćttur gjaldmiđill.
Eitthvađ finnst húsfreyju
vísundar vera "óţjáll" gjaldmiđill,
og svona dálítiđ fyrirferđamiklir í ţví hlutverki.
En sjálfsagt veđur ekki almúginn
í Malasíu í peningum um ţessar mundir, frekar en
"Ísbjargarokađir" Frónbúar uppi á litla Fróni,
svo vísundar sem "sekt" er máske besta mál
fyrir smá "dodo-brot"
.
Jamm.
En svona ţegar húsfreyja fer ađ hugsa máliđ,
ţá er ţetta máski framtíđin, hvađ gjaldmiđla varđar,
hér uppi á Fróni.
Krónan er klikk, krúnk og botnsokkin sem gjaldmiđill.
Evran stendur höllum fćti, og vor íslenska, "alvitra"
Vikuvölva spáir henni mergjuđu "hruni" á árinu 2010...
og ekki lýgur hún frekar en Dabbi og Mogginn
.
Ţađ veit hver heilvita mađur.
Dollarinn rambar á fjármálabarmi brasks og stríđshelvíta
vestan hafs, milli ţess sem hann dúndrar niđur í
sér amerískt fjármálavíti, sem tíđ
rosatjón af fellibyljum og illa öfugsnúiđ opinbert
kerfi valda reglulega.
Svo ekki eru ţađ vćnlegir kostir í "gjaldmiđilskrísunni"
hér hjá oss ţjáđum af bullandi "útrásarkveisu"og
"bankahrunsdrullu"
.
Ó, sei, sei nei!
Máske ţađ verđi ţá ofan á ađ fara aftur út í hrein og klár
"vöruskipti"
.
Húsfreyja röltir ţá vćntanlega öll nćstu mánađarmót
út í sinn "fébanka" og fćr útborgađa 8 og hálfan "sauđ"
fyrir störf sín....8 lifandi á fćti, einn hálfan, frosinn og steindauđan
.
Sá frosni fer í skottiđ, en svo röltir hún bara međ hina 8 í Bónus.
Skiptir á 3 ţeirra fyrir 10 rúllur af skeini, 2 fernur af mjólk (gulri),
dollu af Smjörva, skyrdós, brauđi og matarkexpakka frá Frón.
Fer svo međ hina fimm sem eftir eru á útsölurnar í Smáralindinni,
fćr úlpu á 9 ára djásniđ, sokka á bóndann og pils á sjálfa sig í Debenham fyrir 2 ţeirra,
og kaupir bland í poka, örbylgjupopp og smávegis af gosi ásamt
Vikunni, Séđ og Heyrt og Lottó fyrir 1 sauđ.
Heill sauđur fer svo í ađ fylla helvískan bensíntankinn,
og kemur svo húsfreyja viđ hjá "skattmann" á heimleiđinni og skilar
honum síđasta lifandi sauđnum.
Sá hálfi frosni í skottinu er svo steiktur, sneiddur og étinn
ţegar heim er komiđ
.
Meeehheeee.
Góđar stundir.
P.S. Verđ ađ skella hér einni góđri í lokin:
Ţađ er dauđi og djöfuls nauđ
ađ dygđasnauđir fantar
safna auđ međ augun rauđ
en ađra brauđiđ vantar.
Sigurđur Breiđfjörđ.
|
Gert ađ greiđa vísunda í sekt fyrir hjúskaparbrot |
| Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt | |


halkatla
vestfirdir
ellasprella
ringarinn
stinakarls
heidihelga
ollasak
gudni-is
juliusvalsson
toshiki
draumar
turettatuborg
netkella
mammzan
vefritid
sigro
arnysig
himmalingur
birnamjoll
jakobk
bryndiseva
hannaruna
helgigunnars
kermit
gattin
magnusthor








Athugasemdir
Ţađ er nákvćmlega svona sem ég sé ţetta fyrir mér.
Og ţá mćtti hugsa sér reiđhöllina í Víđidal sem viđskiptabanka. Ţar gćti fólk komiđ sér upp góđri ađstöđu til hjúskaparbrota ásamt einhvers konar búfjársparisjóđi til ađ eiga alltaf sektirnar handbćrar.
Árni Gunnarsson, 4.2.2010 kl. 10:16
Aldeilis brilliant hugmynd, Árni....sé ţegar fyrir mér "biđrađirnar" í "Víđidalsbanka" ţegar landinn mćtti skelţunnur ađ "taka út" fyrir sektum eftir "fjöruga helgi" á mánudagsmorgnum
.
Ţakka ţér kćrlega innlitiđ.
Sigríđur Sigurđardóttir, 4.2.2010 kl. 17:25
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.