Síðsumarsblíða langt...

rainbows.com  ...fram í september á

  Norður- og AusturlandiCool.

  Hvað sosum sem fólk vill meina

  um hlýnun jarðar, telur húsfreyja

  að þetta sé veður sem menn á þessum

  slóðum eigi inni eftir

  regn og grámósku sumarsinsSmile.

  Frábært að fá svona sumarauka og

  er það einlæg von húsfreyju að menn og konur

  norðan og austan heiða njóti velJoyful.

  Sjálf er húsfreyja sátt við veðurguði eftir

  sólríkt og hlýtt sumar hér sunnan heiða.

  Þeir hafa greinilega tekið húsfreyju í sátt,

  eftir að hún tók við að hrósa þeim í hástert

  og þakka góða þjónustu, áður

  en hún setti fram "hóflegar" kröfur um

  veður á öllum sínum ferðum í sumarTounge.

  Fór "aðeins" fram á hlýindi sól og blíðu, húsfreyja!

  Enda lítið mál fyrir þá að senda sól og

  blíðu á eftir bíl húsfreyju, og skorða svo

  veðurblíðuna þokkalega vel við ákvörðunarstaði

  hennarWhistling.

  Eru jú sjálfir VEÐURGUÐIRNIR....með stóru vaffi og

  upphafsstöfumGrin.

  En merkilegt nokk...leiðir húsfreyju leiddu hana

  aldrei austur á land, og aðeins einu sinni til Akureyrar...

  og á Akureyri var búin að vera mígandi rigning fyrr

  um morgunin, þá húsfreyja mætti með sitt lið á svæðið.Halo

  Stytti upp um leið, og bóndi renndi bílnum inn á GlerártorgiðCool.

  Váv! 

  Húsfreyja bara komin með SAMBÖND.

  Og það við Veðurguðina einu og sönnuDevil.

  Ja hérna hér.

  Það er af sem áður var.

  Æludallaferðir í stórum stíl með Herjólfi út í Eyjar.

  BÚNAR!

  Hríðarbyljir, þrumur og eldingar rétt á meðan

  húsfreyja skaust austur fyrir fjall!

  BÚIÐ!

  Nóaflóð í öðru veldi 7 daga samfleytt í sumarbústöðum.

  BÚIN!

  HALELÚJA!

  Húsfreyja er rokin út í búð og svo beina leið austur

  fyrir fjall í kaffi til múttu sinnar.

  Það verður BONGÓ!!

  Góðar stundir ævinlega í góðu veðri.

 


mbl.is Yfir 20 stiga hiti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband