Dásemd!

p7110009-grose-antique-books-with-candle-499x384  Bókaormurinn í húsfreyju

  tók flikk flakk með þrefaldri

  skrúfu af gleði, þá hún barði

  fregn þessa augum, nýrisin

  úr rekkjuGrin.

  Man húsfreyja þá tíma, að reyna átti

  að stilla hana inn á "venjulegan"

  svefntíma þá hún var ung að aldriWhistling.

  Voru ljósin í barnaherberginu slökkt,

  og fylgst grannt með að ekki læddist

  húsfreyja í að kveikja aftur.

  Tróð hún sér þá 7-12 ára skotta,  út

  í glugga og las í björtu tunglsljósinu....Wink.

  Enid Blyton...Astrid Lindgren....allt sem

  hún komst í eftir þá höfunda lesið.

  Aðeins seinna "Gulleyjuna", "Moby Dick" og

  "Fleming og Kvikk".

   Haraldur bókavörður  á safninu í Eyjum

  var farinn að hjálpa lestrarhesti þessum,

  við að finna "ólesnar" barnabækur, þá hann hafði tíma.

  Mátti taka 4-10 bækur í einu að láni í safninu, eftir foreldraboði,

  svo heimalærdómurinn yrði ekki útundan í

  öllum skemmtilestrinum.

  Tók ALLTAF 10 bækur að láni!

  Var alæta á barnabókmenntir, ekkert hægt að

  merkja þær fyrir henni "eingöngu fyrir stráka",

  eða eingöngu fyrir stelpur.

  Hafði Haraldur gaman að, að yfirheyra skottu

  smávegis um innihald bókanna, því svo hratt

  las hún, að hún náði iðulega að klára 10 bækur á

  innan við vikuHalo.....enda lesið við tunglsljós.

  Hélt hann að hún hefði "svindlað", og sleppt því

  að lesa eins og 3-4 bækur.

  En alltaf hafði hún svör á reiðum höndum, og ALLAR

  hafði hún lesið.

  Síðan kom vorið, og ferðir skottunnar urðu strjálli

  á bókasafnið, og að lokum sást hún ekki lengur innan

  um virðulegar bókahillurnar á bókasafni Vestmannaeyja.

  Var horfin á vit eigin sumarævintýra á eyjunni fögru, í útileiki,

  fjör og söng.

  En þá haustaði aftur og tók að dimma,

  mætti aftur smávaxin, logarauðhærð

  skotta í dyrnar á bókasafninu hjá Haraldri, brosti

  feimnislega, og spurði eftir nýjum barnabókum!

  Og Haraldur bókavörður leit yfir gleraugun sín, glotti

  vinalega og sagði að jú kannski að hann hefði fengið eins og

  3 nýjar barnabækur yfir sumarið.

  Og hló svo upphátt sá góði bókavörður, þá hann sá

  vonbrigði skottunnar....BARA þrjárW00t!

  En oft lumaði sá góði Haraldur á gömlum

  góðum barnabókum, sem skottan hafði ekki

  enn náð að lesa...og svo mátti nú bara lesa

  AFTUR skemmtilegustu bækurnar....og AFTUR!

  Það er næsta víst að húsfreyja mun EKKI

  láta bókamarkað Perlunnar fram hjá sér fara.

  Er reyndar með mikið leiktríó á sínum snærum

  þessa helgina.  Svalan mætt og Elínóra besta

  vinkona líka.

  Bíóferð í spilunum...enn ein hundamyndin....DÆS!

  Verst ef húsfreyja fer algjörlega "í hundana", áður en henni

  tekst að næla sér góðri bók ú PerlunniPinch.

  Gera "bíóliðskönnun" næst.

  Góðar stundir.


mbl.is Þúsundir bóka í Perlunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband