Hrikalegt! Rosalegt!

funny_animals_01  Að klikka svona á öllum

  sköpuðum hlutum, húsfreyjaW00t.

  Auðvitað hefði hún átt að giftast

  honum "Spægó", fressinum í næsta húsi

  þá hún var 2 ára, og í ljós

  kom að "frekjuskarðið" á milli framtanna

  hennar rúmaði heila tönn....þótti heldur

  ólánlegt á að líta, svo ekki sé minnst á

  "ógurlega skapsmunina" sem fylgdu

  "tanngjá" þessariHalo.

  Í dag er þá hún og hennar herlega stórfjölskylda

  "Nóbelsverðlaunahafar í veseni" allt út af

  svona mergjuðu "giftingarklikkelsi" í bernskuAngry!

  Eldgos í bakgarðinum hjá húsfreyju ´73 var fyrsta

  vísbendingin um að eitthvað hefði klikkað

  illilega í "giftingarbransa" húsfreyju í

  frumbernsku.Pinch

  Prestur sem kveinaði eins og kvalinn köttur

  þá hann tónaði í fermingu hennar, hefði

  líka átt að hringja öllum aðvörunarbjöllumWhistling.

  Stutt andlát með "frávísun" úr "himnaríki sjálfu"

  eftir "hvellsprunginn" botnlanga, á unglingsárum hefði einnig

  átt að skjóta 50 logarauðum neyðarblysum á loft í heilabúi

  húsfreyjuDevil.

  Og góðærissukkari af Guðs náð (og af Dabba náð) uppi á Litla Fróni

  og terroristi numero UNO í Stóra Bretlandi síðustu

  mánuði, hefði svo sannarlega átta að sprengja "atombombu"-

  ljós í hugarskotum hennarW00t.

  En sei, sei,nei!

  Húsfreyja búin að vaða í villu og svíma, ÓGIFT,

  VESENISTI í stórum stíl árum saman og stendur bara á

  (illu) öndinni yfir yfir öllu þessu árans, óláns

  VESENI sem hún alltaf virðist klúðra sér íShocking.

  Hún sem hefði getað lifað rólegu og huggulegu

  lífi í Eyjunum....harðgift honum Spægó! 

  Raulað Eyjalögin, duddað við kartöflurækt,

  skroppið í bjargsig í Heimakletti á

  hverjum föstudegi, verslað sér dress hjá

  Jóa í Drífanda, náð sér mjólk og brauð á

  Þingvöllum og fengið sér kandís í Brynjólfsbúð.

  Og hún hefði náð sér í efnilegan útgerðarmann

  úr Eyjunum, þá Spægó ræfillinn gerði hana að ekkju

  og lifað hamingjusöm til ævilokaTounge.

  Jamm, mikið hrikalega skal húsfreyja alltaf "klikka

  rosalega" á svona sára einföldum málum,

  eins og að giftast einhverju heimilisdýrinu í

  bernskuPinch.

  Ætli það sé nokkuð hægt að redda málunum

  úr þessu??

  Hmmmm... hann Siggi Freyr frændi húsfreyju

  var að fá lítinn "fresskettling".....ætli hann sé

  nokkuð lofaður......LoLToungeGrin!?

 


mbl.is Giftist hundi vegna ólánstannar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporðdrekinn

LOL

Sporðdrekinn, 23.2.2009 kl. 18:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband