Hikk!

apple_3pk2  Ætlaði að fara að grilla nú með kvöldinu, húsfreyja.

  Er þá bévítans grillsósan búin rétt einu sinni....hikk...afsakiðSideways!

  Nei, smá grín!

  Er samt alveg myljandi skemmtileg frétt frá hinu mikla veldi Breta.

  Húsfreyju dettur þá í hug hið ágæta "rauðvínsmarineraða" lambalæri

  sem fæst í matvöruverslunum flestum.

  Þetta er máske orðið gegnsósa læri upp á 2-5%, og húsfreyja í

  vondum málum ef hún reynir að versla herlegheitin ÁN nafnskírteinisW00t.

  Eða hvað?

  En hið huggulega starsfólk Bónus og Hagkaups hefur aldrei krafið

  húsfreyju um nafnskírteini, þá hún verlsar sér lambalæri í matinn.

  Því síður pælt í því hvort grillsósa hennar sé menguð af vínanda,

  þá hún greiðir varninginnGrin.

  Aðeins verið beðin um að þekkja "nöfnin" á eplunum í Bónus, við

  kassana.  "What is the name of this apple"?, er spurning sem

  húsfreyja klikkar oft illilega áPinch.

  Og vill húsfreyja biðja Jóhannes í Bónus, að auglýsa betur

  "eplaskírnir" sínar, svo húsfreyja geti kynnt sér hvað nöfn

  þau hafa fengið.

  Dugir ekki að segja bara "Jóhannes" eða "Jói", en húsfreyju

  fannst rökrétt, að Jóhannes í Bónus skírði eplin sín í höfuðið á sér

  sjálfumWhistling!

  Svo gott væri að fá nánari upplysingar um málið, svo húsfreyja

  hafi "Jón, Gunnur og Nonna" á tæru, þá næst hún verslar epliDevil.


mbl.is Of ung til að kaupa grillsósu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband