Júdóþema á árshátíð blankra bankahrunsmanna og kreppuvíkinga?

b20  Eða máski verið að stofna nýja

  "júdódeild" meðal grískra og ískra innflytjenda

  uppi á litla Fróni, sem eru víst þær þjóðir sem komu

 öllu verr út úr kreppunni en Frónbúar...W00t

  ef það er þá mögulegt?

  Nú eða máske vantaði bara fallega og " ljósa gardínustrimla" með svörtu ívafi,

  í gluggana á Ráðhúsinu, núna í sólbjörtu vorinu

  og Gnarrinn er að "samnýta" gallana með júdódeild KA,

  því hann er búinn að SAMEINA borgarstjórn og júdódeildinaDevil.

  Gleymdi bara að láta þá KA-menn í júdó vita, GnarrinnTounge!!

  Eða hvað?

  Hví stela menn "júdógöllum"Angry??

  Ekki er auðvelt að selja slíkan varning á svörtum hér á landi.

  Eftir því yrði tekið, ef einhver færi að spássera um í

  brúkuðum júdógalla frá KAPolice.

  Selja þá út úr landi?

  Kannski.

  En þetta er fatnaður með beltum og alles.

  Fatnaður tekur pláss, og 20-30 gallar eru nokk að skila einhverjum

  kílóum inn á vigtina í farangri, þá farið er erlendis.

  Og hvar er að finna markað fyrir STOLNA júdógalla erlendis?

  Er kannski myljandi eftirspurn eftir júdógöllum á svörtum

  mörkuðum þar útiShocking?

  Ef ekki, hvað vilja menn þá með stolna júdógalla?

  Ekki eru þeir vænlegir til átsSick.

  Því síður að klippa þá niður í ræmur og sjóða út í tePinch.

  Jú, einhverjir sniðugir að endurvinna fatnað, gætu

  hugsanlega "hannað" slatta af hvítum eyrnaböndum með svartri stjörnu í miðju,

  og selt túristum á leiðinni að týnast upp á Vatnajökli, grimmtDevil.

  Eða hannað nýja línu í fangabúningum:  Hvítan "júdólíkan" galla,

  með svartri rönd langsum niður frá hálsmáli niður að mitti.

  Svarta línan væri síðan mælistika, þar sem fangelsisstjóri,

  merkti með rauðum tússi þvert á þá svörtu, hve mörg ár,

  fangi væri búinn að sitja inniWhistling.

  Nei, bara svona hugdetta.

  Húsfreyja hefur ekki hugmynd, hví menn stela júdógöllum frá KA,

  í hvaða tilgangi eða af hvaða hvötum.

  Er til júdódellufók, sem SAFNAR júdógöllum, kaupir þá grimmt á

  netinu, kembir útimarkaði og vílar sér jafnvel ekki við að

 stela eins og 20-30 stykkjum, til að ná safninu upp í

 500 galla sléttTounge?

  Hvað veit húsfreyja.

  En eitt er hún með alveg á tæru:

  Júdógallaþjófar þessir hafa alls ekki gert sér grein

  fyrir því, í hvílíkan rosa GALLAÞVOTT þeir voru að

  koma sérW00t!

  Margra daga þvottur í venjulegri heimilisþvottavél!

  Eins gott að þjófa þessir búi á næstu slóðum við Europreis,

  svo þeir fái þvottaefni ódýrt....já og muna að þvo beltin sér,

  svo gallarnir verði ekki allir gráir.....en máske er það einmitt meiningin...hmmmmWoundering!

  Einhverjir orðið varir við, að verið væri að selja "gráa" íþróttagalla með frönskum,

  "nýásettum" rennilásum?..... svartar eðalmjúkar hundaólar fást FRÍTT meðWhistling?

  Húsfreyja stóðst ekki mátið..heheheLoL.

  Þykir henni þjófnaður þessi furðu gegna.

  Góðar stundir á sólríkum sunnudegi.


mbl.is 20-30 júdógöllum stolið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband