Guð minn góður.....

 

 images?q=tbn:ANd9GcRLub9-TOBWTDGqK2Bhp5OE2C_mPCUkR-J15mIIyxZbvAGe1FHfQdf9KGwfmw ..... oh my God", erlenda konan grét hástöfum og réri í gráðið.

  Húsfreyja stumraði yfir henni og reyndi að hugga.

  "Can I call your husband and ask him to come for you"?,

  húsfreyja vildi

  koma erlendu kófdrukknu konunni sem "næstum því"

  hafði drukknað í Bláa Lóninu í öruggar hendur sem fyrst.

  Erlenda konan reisti sig upp og hristi leðjugráa lokkana

 ört og nánast orgaði:  Noooooo!

  "No, no, no, no, dont call him...nononono"...orðin hurfu í mikil ekkasog.

  Húsfreyja var eitt spurningamerkiShocking.

  Botnaði ekki baun í málinu.

  "Ok I´ll ask your friend to stay with you, until you feel strong

  enough to walk out to the car with him".

  "NOOOOOOOOOOOOHHH!  SEND HIM AWAY......NOW"W00t!!!

  Öskur hálfnöktu, næstum því drukknuðu konunnar  voru nærri því

  búin að sprengja báðar hljóðhimnur húsfreyjuPinch.

  "Vinurinn" kom hlaupandi inn á slysastofuna.

  Ungur maður um þrítug, a.m.k 15 árum yngri en nærri því

  drukknaða frúin.

  "Clara are you ok", íslenski framburðinn á enskunni heyrðist vart.

 " OUT"!!!, erlenda konan gargaði á unga manninn, sem

  hrökklaðist út aftur, um leið og frúin hóf aftur að selja upp

  gruggugu Bláa Lóns-vatni í bland við hreinan vodkaSick.

  Húsfreyja hafði snör handtök og skellti ælubakka

  undir stærstu gusuna, vafði köldu þvottastykki um höfuð

  frúnnar og hélt við.

  "Ég er svoooo glötuð...I´m so useless" grét erlenda konan hátt,

  um leið og hún kokaði og kúgaðist.

  Húsfreyja var í standandi vandræðum.

  Læknir var horfin á braut, hafði sagt húsfreyju að það mætti

  útskrifa nærri drukknuðu konuna í hendurnar á manni sínum.

  Bara eitt:  Læknir hafði talið þann þrítuga vera mann konunnar,

  og þann mann vildi frúin kófdrukkna, en ódrukknaða ekki

  sjá nálægt sérAngry.

  Og ekki mátti húsfreyja heldur hringja í mann hennar,

  en hann var erindsreki og vann fyrir erlent sendiráð,

  eftir því sem húsfreyja komst næst.

  "You'r dead if you call him.....snökt..org...I´m dead...."!

  Ekki gat húsfreyja heldur skilið erlendu frúna eftir niðri á slysó,

  á meðan hún sinnti sínum 22 sjúklingum á deildinni á næstu

  hæð fyrir ofan á sjúkrahúsi Keflavíkur.

  Húsfreyja vippaði sér fram og ætlaði að ræða við þann

  þrítuga, þegar ægilegt org barst frá slysastofunni, og svo:

  "DO NOT TALK TO HIM!  SEND HIM HOME"!

  Sá þrítugi yppti öxlum, "ég tek bara taxa í bæinn",

  og svo var hann horfinn.

  Og uppi sat húsfreyja með háorgandi erlenda konu

  og bifreið hennar parkeraða í stæði  fyrir sjúkrabílaCrying.

  GleðiPinch.

  Nú voru góð ráð dýr.

  Húsfreyja hugsaði hratt. 

  Fór inn á slysastofu, þar sem næstum því drukknaða

  konan var að úthúða sjálfri sér, á milli þess sem

  hún ældi í ruslafötuna....."I'm so lame"!

  Húsfreyja gaf frúnni í skyndi ógleðistillandi stíl,

  mældi lífsmörk og súrefnismettun. 

  Allt í fínu lagi.

  Frúin grenjaði hástöfum á háa séinuPinch.

  Húsfreyja beið færis, þegar heldur hljóðnaði

  grátur, og spurði um vinkonu sem frúin treysti

  og gæti náð í hana.

  Frúin virtist ætla að róast við upp ástunguna, þegar:

  "Ooooorrrrrgh...but what about the car......it's my

  husbands......"GetLost?

  Nú greip erlendu konuna einhver fítonskraftur,

  hún hentist á fætur og æddi um eins og ljón í búri...

  "I've to drive back to Reykjavik myself..."  hrasaði

  við, slangraði að stól, stóllinn datt og frúin með í gólfiðWhistling.

  Eftir hálftíma org á gólfinu, tókst húsfreyju loks að

  ná símanúmeri vinkonu upp úr henni.

  Hálftíma seinna náði hún svo frúnni upp úr gólfinu,

  og bíllyklum hennar frá henni.....komin með

  hellur fyrir bæði eyru af skerandi grátnum.

  Reddaði bílnum fína frá inngangi slysó svo

  sjúkrabíll kæmist að.

  Vinkona erlendu konunnar mætti síðan með

  sínum ektamaka og þau

  sáu um að koma þeirri næstum því drukknuðu og

  bifreið hennar til höfuðborgarinnar við sundin bláu.

  Húsfreyja orðaði ekki þrítuga "vininn" við þau,

  enda lá líf hennar viðWhistling... "you are dead if you tell them

  about him"W00t.

  Ítrekaði aðeins þörfina fyrir að fylgjast vel með

  frúnni næsta sólarhringinn og bað þau vel að lifa.

  Og frúna sá hún síðan á síðum dagblaðanna nokkrum

  vikum seinna í hóp af fínu fólki við einhverja opnun

  í ráðhúsinu,  svo hún hefur plummað sig flott eftir

  reddingar húsfreyju og læknisTounge.

  En mikið hrikalega var húsfreyja sein með öll sín

  verk á deildinni sinni þessa kvölvakt í júní fyrir

  allmörgum árum síðan....og eins og hálf heyrnarlaus

  í þrjár vikur á eftirDevil.

  Þessi sundlaugakonusaga minnti húsfreyju á þetta

  sérstaka atvik þarna í Keflavík um árið.

  Góðar stundir og gangið hægt um gleðinnar dyr.

 


mbl.is Kom að fyrrverandi í sundlauginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband