Af niðurskurði í hreyfifærni.

  funny-soldiers-1508Húsfreyja lá bakk í bælinu.Crying

  Heilaræfillinn hafði að gömlum og góðum sið sent

  "ordrur" beint niður á vöðvaliðið í hægri öxl húsfreyju,

  og skipað því að reisa kerluna upp, og ýta henni fram úr

  rúminuWhistling.

  RÆS, var boðorð dagsins, enda klukkan að ganga 11 á laugardagsmorgni.

  Það var þá sem allt fór til andskotans.Angry

 "SETUVERKFALL"! ! , orgaði verkstjóri axlarvöðva

  húsfreyjuW00t.

   "Þetta er er ekki að gera sig hérna hjá

  frúnni!  Hún er búin að bræða úr öllum

  leiðurunum (taugunum) og rústa

  helvíska stóra lyftikrananum (aðal-sininni)".

  Verkstjórinn spýtti  bálreiður á einn reittan "leiðarann" sem sendi frá sér

  med det samma, mergjaðar eldglæringar

  og krampakenndar bylgju eftir öxl niður í úlnlið og eftir hálsi upp

  í haus á húsfreyju.Pinch

  ÁÁÁ!

  Húsfreyju sundlaði af sársauka.

  Hefði steinliðið yfir hana ef hún hefði ekki verið útafliggjandi

  í rúmi sínu hvort eðWoundering.

  Hvað var að gerast?

  Heilaræfillinn var miður sín, og sendi með hraði

  sveit "sjúkraliða" (bólgusvara) niður á hægra axlarsvæðið.

  Þar var allt í helvísku báli og brandi, tjóni og tjöru, rúi og stúiAngryW00t.

  Aðallyftikraninn var ryðgaður FASTUR í síðustu stöðu, enda búin að

  bólgna út í tvöfalda stærð sínaErrm.

  Leiðarar flestir undir einhverju djö... fargi, klemmdir, óvirkir

  og tættirCrying.

  Sjúkraliðasveitinni féllust hendur, þegar vöðvaverkstjórinn

  ullaði illskulega framan í hana, og sagði henni að

  drulla sér aftur upp í stjórnstöð, og láta andskotans

  "bossinn" (heilaræfilinn") koma viti fyrir frúna. 

  "Nú verður frúin að andskota sér

  til læknis í einum hvínandi hvelli,

  og ekkert djö... "þetta lagast-kjaftæði"!Angry

  Vöðvaverkstjórinn var orðinn sótrauður í andliti af vonsku, pirringi

  og aðgerðarleysi:

  "Þangað til erum við strákarnir farnir í

  VERKFALL, og snáfið þið upp!

  STRÁKAR!  Komið!  Við tökum slag

  í félagsvist".Tounge

  Húsfreyju tókst með harmkvælum að koma sér fram

  úr rúminu.

  Hún var lent í bullandi niðurskurði á hreyfifærni

  í hægri öxl, og ekki bara hægri öxl.

  Hún var komin með myljandi niðurskurð á

  hreyfifærni í hálsi hægra megin einnig.Shocking

  Jaso.

  Nú voru góð ráð dýr.

  Húsfreyja skellti í sig einni tveimur bólgueyðandi verkjatöflum.

  "Húmbúkk"! , orgaði vöðvaverkstjórinn, og

  gaf í næsta spil í félagsvistinni.Devil

  Húsfreyja náði í hitapokann sinn með erfiðismunum,

  sat í hálftíma með hann á hæ öxl sinni.

  "Nú hlyti þetta að fara að lagast".

  "Je RÆT"! GetLost, vöðvaverkstjórinn leit ekki

  einu sinni upp frá félagsvistinni.  Var að vinna.

  Húsfreyja var í öngum sínum.

  Og að drepast í öxlinniPinch.

  Heilaræfillinn reyndi að höfða til heilbrigðar skynsemi

  sinnar, og laumaði hugmynd um læknisheimsókn

  að frúnni.

  Húsfreyja hafnaði svoleiðis VESENI samstundisWhistling.

  Auðvitað hlyti þetta að "lagast".

  "DREAM ON, hálfviti"Devil , gargaði

  vöðvaverkstjórinn, og trompaði spaðaásinnLoL.

  Heilaræfillinn fékk nærri því verki í vinstra heilahvelið af álagi og pressuSick:

  Einhvern veginn varð hann að fá frúna til að fara til læknis:

  "Ömm, kæra frú.  Afi yðar og faðir

  voru báðir gigtarskrokkar, og afinn

  meira að segja með hroðalega slitgigt.

  Vilduð þér nú ekki vera svo vænar og

  skreppa til heimilisdoktorsins og fá

  úr því skorið, hvort öxl yðar sé ónýt af

  sliti, eða hvort einhverju verði bjargað

  með sjúkraþjálfun eða aðgerð"?

  Hefði heilaræfillinn verið með hjarta, hefði hann verið með það

  í buxunum, svo stressaður og auðmjúkur var hannTounge.

  "Hvaða stress er í gangi", húsfreyja var rasandiW00t.

  "Þó ég sé með smá "stirðleika" í öxl eftir langa vinnuviku,

  er það ekkert að tapa sér yfir".

  "FÍFL", vöðvaverkstjórinn hló illyrmislega,

  um leið og hann gaf í næsta spilDevil.

  "En kæra frú" , heilaræfillinn var gráti næstErrm,

  ég er búin að missa alla stjórn

  á vöðvaliðinu í öxl yðar, og þeir

  eru allir farnir í verkfall...gerið nú

  þetta fyrir mig"Halo.

  Húsfreyja setti í brýrnar.

  Tarna var ljóta.

  Ekki gat hún mætt í vinnu með "hangandi hendi"Halo

  á mánudag...varla að hún þyldi við í fríi heima

  um helgina.

  Ákvað að fara að skynsömum boðum heilaræfilsins,

  og kom sér til "doktorsins".

  Nú sést húsfreyja á blússandi fart á leið til sjúkraþjálfa

  tvisvar í viku, þar sem helvískur aðallyftikraninn er mýktur upp,

  og leiðararnir eru í "hljóðbylgjumeðferð"Cool.

  Vöövaliðið er aftur komið til starfa:  "Hún hefði

  nú mátt leyfa okkur að klára

  þriðju umferðina í félagsvistinni,

  frúin. En auðvitað er alltaf gleðilegt

  þegar fólk fer að skýrast í hugsun

  á gamals aldri og stíga í vitið"! 

  Einnig má sjá húsfreyju utan dyra flesta daga að loknum

  vinnudegi, íklædda sínum rauða kuldagalla,

  sveiflandi örmum á gangi eins og bolsévikki í her

  Stalíns á Rauða TorginuTounge.

  Húsfreyja veit það fyrir víst, að heilaræfillinn hennar er

  alsællJoyful.

  Húsfreyja og vöðvaverkstjórinn hins vegar, ræðast ekki viðGetLost.

  Sættast kannski á Jólum.Whistling

  KannskiGetLost.

  Góðar stundir og hugið vel að heilsunni á köldum vetrarmorgnum....

  annars eru allir velkomnir í bolsévikkamarseringuna með húsfreyjuDevil.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband