Himininn mergjaður...

92573448  ...svona heiður og blár" hugsaði

  húsfreyja er hún rölti heim á leið

  með hálfullan Hagkaupspokann.

  Esjan blikkaði húsfreyju vinalega,

  um leið og systir í Þorlákshöfn sagðist

  hafa tapað öllum áttum.

  "Nú Esjan er þarna, skólinn hér fyrir framan okkur

  og húsið handan við " húsfreyju fannst þetta ekki mikið mál.

  Systir náði áttum og dæsti af létti.

  Hún öllu hlaðnari en húsfreyja eftir fatakup í Hagkaup,

  útsala þar í gangi, og hefði ekki viljað ráfa rammvillt

  um Grafarvoginn hlaðin pokum og pinklumPinch.

  Húsfreyja brosti í kampinn.

  "Það er ekki flókið að rata hér innan Grafarvogs, systir,

  það var eitthvað annað hér í London um árið".

  Það sumarið hafði húsfreyja skroppið í hátignarlega

  borg bresku Betu, sjálfa London með tveimur vinkonum sínum.

  Aldrei þessu vant viðraði brilliant vel í London,

  enda hásumar, 30 stiga hiti, himinninn heiður og

  blár dag eftir dag og sú gula í essinu sínu.

  Þær stöllur höfðu vaknað snemma þrátt fyrir ágæta

  loftræstingu Grafton hótels, sem var spölkorn frá

  Oxfordstræti og Piccadilly.

  Dagurinn var strax orðinn mollulegur fyrir

  hádegi, og aðalverkefni ferðarinnar framundan.

  Skreppa niður í katalog-verslun á Oxford og

  ná lagernum af þeim kaupahéðnum er þá verslun ráku

  fyrir systur húsfreyju, vinkonu hennar í Eyjum og

  smotterí fyrir múttu.

  Þrátt fyrir miskunnarleysi þeirrar gulu, svækjuhita

  og skerandi birtu í augun, drifu vinkonurnar þrjár

  sig af stað í verslunarleiðangurinn fyrir hádegi.

  Illu var best af lokið, og þá gætu þær svo dólað

  sér í hádegissnarl í rólegheitum og skroppið

  og kíkt á Tower í London á eftir.

  Í katalogversluninni töpuðu vinkonur og húsfreyja

  sér alveg yfir allri dásemdinni sem var í boði,

  svo sækja varð í "varalager" verslunarinnar svo

  þær fengu allt sem þær NAUÐSYNLEGA urðu að kaupa....Whistling

  fyrir utan barnasæng, kerrupoka og annað dótarí

  fyrir systur, vinkonu og múttu.

  Út fóru þær með 12 poka í yfirstærð, troðfulla.

  Stöllurnar þrjár fíluðu sig líkt og "pokafólk" í New York

  í skrúðgöngu 4 júlí, þegar þær komu út á OxfordstrætiPinch.

  Þær ákváðu í snatri að flýja niður í næstu "undirgrund",

  eins of þær kölluðu oft neðanjarðarlestarnar, og koma

  "vörulagernum" upp á hótelTounge.

  Voru alls ekki í sinni fyrstu Lundúnaferð, og voru

  vel kunnugar lestarkerfinu og nokkuð flinkar að

  nota það.

  Jamm.

  Rétt lest fundin í snatri og síðan öllu pokadótaríinu

  troðið inn, og þær stöllur töldu sig hólpnar.

  Yrðu þá ekki hirtar upp af snyrtilegum breskum

  lögregluþjóni, sem kærði þær fyrir að vera

  amerískar "bag-ladies" í London...sektaði þær

  jafnvel fyrir "sjónmengun"Devil.

  Og lestin brunaði af stað.

  Vinkonurnar rýndu á hvert stöðvarmerkið

  á fætur öðru......nah.......nei......ekki þessi...

  hva...rosalega var langt í þeirra endastöð.

  Greinilega hrikalega margar stöðvar á milli.

  Þær stallsystur með 12 pokana sátu rólegar, spjölluðu

  og þóttust ekki taka eftir augngotunum sem

  þær og farangur þeirra fékk frá öðrum farþegum.

  Skyndilega birti.

  Lestin kom UPP á yfirborð jarðar.

  Hvurslags?

  Var þetta ekki NEÐANJARÐARLEST?

  Vinkonurnar litu í kringum sig.

  Þær virtust vera komnar upp í sveit.

  Hvar var Grafton-hótelið?

  Hvar var LONDON?

  Eftir dágóðan akstur, stöðvaði loks lestin við

  litla lestarstöð.

  Vinkonurnar rusluðu sér út í snarhasti,

  með alla pokana 12.

  KRÆST.

  Þær voru rammvilltar.

  Míni-panikk greip stöllurnar,

  þær hringsnérust góða stund,

  áður en þær áttuðu sig og komu sér

  yfir á stöðvarhelminginn þar sem lestin

  stöðvaði á leiðinni inn í borgina aftur.

  Þær tylltu sér á bekk á stöðvarpallinum,

  með pokana 12 þétt upp við sig.

  Sólin var að steikja úr þeim heilabúið.

  Hitamælir á veggnum á lítilli stöðvarbyggingunni

  sýndi hitastigin bæði á Fahrenheit og Celcius.

  Hiti 41 gráða á celcius!

  Stöllurnar voru aleinar.

  Ekki sála á ferli.

  Jaso.

  Húsfreyja litaðist um í von um að

  finna eitthvert lífsmark.

  Handan lestarteinanna var víðáttumikill akur,

  móaði í agnarsmátt legóhús, rytjuleg tré

  og tvær beljur á beit út við sjóndeildarhring.

  "Jæja, það er þó altént lífsmark" hugsaði

  húsfreyja, er önnur kýrin lyfti haus frá jðrðu.

  En ákvað síðan húsfreyja að standa upp og

  líta yfir vegginn bak við bekkinn.

  Fór um hana hrollur.

  Gamall kirkjugarður.

  Gráir, illa farnir legsteinar.

  "Stelpur, við virðumst hafa lent hér með pokana okkar 12 á stað

  MITT Á MILLI LÍFS OG DAUÐA".

  Vinkonurnar litu við.

  Síðan á hvor aðra.

  Á pokana 12 fulla af varningi.

  Skelltu upp úr og grétu af hlátri.

  Veinuðu af hlátriTounge.

  Þegar hópur af ferðalöngum á leið til

  London komu upp á lestarpallinn,

  ráku þeir upp stór augu.

  Á eina bekknum þar sátu 3 ungar konur,

  í hrúgu af stórum pokum frá "katalogverslun"

  og grenjuðu af hlátri.

  " 'Orribly strange bag-ladies" hvíslaði ung

  stúlka að kærasta sínum er hún fór fram hjá

  bekknumLoL.

  Húsfreyja og vinkonur hennar misstu þar með

  alla stjórn á hlátrinum, og voru nánast frávita

  að hlæja alla leiðina aftur til London.

  Komust við illan leik upp á Grafton hótel,

  með alla pokana 12!

  Týndist ekki einn einasti.

  Af 12 poka-varningi þessum á húsfreyja aðeins

  einn hlut enn:  Forláta hljóðláta vekjaraklukku,

  sem vekur húsfreyju á hverjum virkum morgni

  með ljúfri röddu.  "It's time to wake up"!

  Hvort vinkonur eiga eitthvað eftir af sínum

  kaupum, veit hún ekki.

  En mikið rosalega voru þetta bráðnauðsynleg kaup

  þarna um árið.Devil

  En húsfreyja ætlar til ferða að sækja Svöluna úr bíó.

  Vonandi ratar hún......Whistling

  Góðar stundir á fögru sumarkveldi.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

skemmtileg saga....

Sigrún Óskars, 6.7.2011 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband