Hamingjan er í hlýjum geislum sumarsins.

stock-photo-funny-sun-with-fruits-vector-version-of-this-image-also-available-in-my-portfolio-54471025  Sú gula var í hamCool.

  Húsfreyja skáskaut sér og djásninu

  í gegnum þvöguna í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum,

  fann svitann renna  ónotalega niður eftir bakinu um leið

  og mannfjöldin varð stopp við endann á brúnni.

  "Váv, það er heitt", gjóaði augum á þá gulu í von um miskunErrm.

  Ekki sjens!

  Tvær unglingsstúlkur með "Candyfloss" á lofti fyrir framan

  húsfreyju reyndu að komast áfram með því að ÝTAPinch.

  Ekkert dugði, en gömul hvíthærð amma kvik á fæti,

  skaust fram og til baka "út á hlið" fyrir framan húsfreyju

  og unglingsstúlkurnar.  Fram og til baka.....fram og til bakaGrin.

  Gat greinilega ekki ákveðið sig hvort hún vildi vera hægra megin

  í fólksmergðinni eða vinstra meginWhistling.

  Enginn komst hænufet áfram.

  Stúlkurnar flissuðu, og húsfreyja sá að ungur drengur á að giska

  12 ára og stóð þétt fyrir framan þær, var kominn

  með bleikar Candyfloss-strípur í dökkt þykkt hárið...aftan tilPinch.

  Drengur varð einskis var.

  "Þvílík hamingja, að lenda "fyrir aftan" candyfloss-stúlkurnar"

  hugsaði húsfreyja með sér, um leið og "hliðlæga, hvíthærða amman,

  fékk bleika Candyfloss-rönd á öxlina á ljósum sumarjakka sínumGetLost.

  Amman varð einskis vör.

  Loks fór mannmergðin að mjakast af stað.

  Hænufet fyrir hænufet.

  Ung stúlka í starfsmannafatnaði garðsins, reyndi að

  fá fólk til að skipta brúnni eftir miðju..."gangið hægra megin,

  GANGIÐ HÆGRA MEGIN" svo umferðin gangi í báðar áttir

  yfir brúna"Police!

  Hvíthærðu "hliðlægu" ömmunni gekk erfiðlega að sætta sig

  við svo "afdráttalausa staðsetningu" á brúnni, var ætíð

  komin í fangið á fólkinu sem streymdi yfir brúnna

  á móti húsfreyju og djásniW00t.

  Starfsstúlkan beindi ömmunni hliðlægu aftur á hægri

  helming brúarinnar.

  Amman snerist í hring fyrir framan húsfreyju og Candyfloss-

  stúlkurnar, fékk nýja bleika rönd eftir miðju jakkabaki,

  og vippaði sér síðan snarlega 3 skref yfir á vinstri

  helming brúarinnarPinchDevil.

  Beint í fangið á fjölskylduföður með ungabarn á handleggnum.

  Pabbinn dæsti af örvæntingu þess sem á sér enga undankomu

  auðið, og leit ásakandi á starfsstúlkuna:

  "Getið þið ekki stjórnað mannskapnum betur".

  Starfsstúlkan togaði pirruð í hvíthærðu, hliðlægu ömmuna,

  "VERÐUR AÐ VERA HÆGRA MEGIN, ÞÝÐIR EKKI AÐ TROÐAST SVONA"GetLost.

  Amman sté 1 og hálft skref til hægri, og reikaði restina

  af leiðinni, svona ívið meira á vinstri helmingi brúarinnarLoL.

  Starfsstúlkan reitti hár sitt af örvæntingu er hún horfði á

  eftir gömlu konunniAngry.

  Húsfreyja hélt sig til hægri með djásnið, og dró öndina léttar

  er þær loks komust yfir brúnna.

  Svala Marý, frænkubeibí, 12 ára mætti, skólaus, sokkalaus og með vinkonum.

  "Eins gott að það er hlýtt" hugsaði húsfreyjaWhistling.

  Skórnir og sokkar frænku eitthvað blautir og verri eftir

  glæfralega ferð yfir pollinn á fleka.

  Svalan hvarf á braut með vinkonum.

  Húsfreyja barðist með djásni í myljandi sólskini

  að pallinum þar sem Sveppi og Villi voru að skemmta.

  Þar múgur og margmenni, en nóg pláss uppi í brekku.

  Þær mæðgurnar fundu fínan stað, og húsfreyja dæsti af ánægju.

  "Nú mátti sú gula láta ljós sitt skína, halda uppi brækjuhita,

  helst út alla skemmtunina"Cool.

  En NEIPP!

  Rúmri klukkustund síðar var sú gula farin í fílu,eða

  máske bara örþreytt, eins og presturinn í ÞorlákshöfnFrown.

  ("Messufall næsta sunnudag.  Prestur er þreyttur" Devil, auglýsti

  sérann í Dagskránni í Þorlákshöfn).

  Það mígrigndi í FjölskyldugarðinumAngry.

  Rigndi svo meira...og enn meiraW00t.

  Tíu ára djásnið fór að fá sérkennilegan bláma

  í kringum munninn, og tennurnar að skrölta í munni hennar:

  "Mééér er svoooo KALT , mamma".

  Skipti engu þó húsfreyja hefði asnast til að taka með

  sér regnhlíf, og djásnið fengi hana til einkanota.

  Húsfreyja yggldi sig upp í regngráan himinn, hugsaði

  þeirri fúlu gulu þegjandi þörfina, og kom djásni sínu

  af stað heim í einum hvínandi hvelli.

  Móaði í hvíthærðu, hliðlægu ömmuna, ásamt fjölskylduPinch

  við endann á brúnni góðu, þegar húsfreyja kom þangað með djásnið.

  Snérust á hæli mæðgurnar, og fóru út um stóra breiða hliðið

  Fjölskyldugarðsins í staðinnWhistling.

  Tíu ára djásnið eigi að síður hæstánægð með ferðina...og bláu

  blöðruna...alveg í stíl við kuldabláan lit vara hennarLoL.

  Húsfreyja svo að tvístíga í dag með ferðalög... og gáði áhyggjufull

  til veðurs í morgun.

  En þá lofaði sú gula bót og betrun, svo húsfreyja lagði af stað

  austur í Þorlákshöfn með tíu ára djásnið.

  "Hafðu ekki áhyggjur af

  gervallri framtíðinni-

  hún er aðeins dagur í senn".

  Þar glotti risastórt rautt hjartalaga andlit á bílskúr systur

  í Þorlákshöfn við húsfreyju og djásniInLove.

  "Noh, Hafnardagar byrjaðir" sagði húsfreyja djásni.

  Djásnið brá sér á trampolínið "med det samme", þó sá

  splunkunýi gripur væri eitthvað orðin skakkur og skældur

  eftir ofsarok síðasta mánudag.

  Systir í önnum, er búin að leigja hús elstu dóttur sinnar,

  og mútta húsfreyju baslaði í bílskúrnum.

  Var búin að finna bílskúrsgólfið sú góða kona, og helling

  af fínum vetrarfötum, sem hún var einnig nýbúin að þvoWink.

  Dugleg kona mútta.

  Það var mikið spjallað, og verðandi leigjandi, gæðalegur maður

  mætti í kaffi, og gott ef sú gula lét ekki svo lítið

  að brosa endrum og eins inn um gluggana á eldhúsinu

  til þeirraKissing.

  "Taktu ákvörðun um að vera

  hamingjusamur-

  og þú ert hálfnaður að markinu".

  Sumarblóm húsfreyju eru öll komin út á sólpall.

  Sú gula lofaði að sinna þeimHalo!

  Húsfreyja hefur einnig staðið í stífum samningaviðræðum við

  "veðurguði alla" um heitt og blítt sumar.

  Gott ef þeir eru ekki að samþykkja 8-10 vikur

  af sólgulri veðursæld hér uppi á litla Fróni.LoL

  Bísna flinkur viðsemjandi, húsfreyja, þó hún segi sjálf fráTounge.

  Góðar og hamingjuríkar sumarstundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband