Rukkar fyrir sólskinið?

 our_sun                                                                                     Húsreyja gerir sér engar grillur,

  þó hún fengi einn herlegan reikning upp á

  200 evrur frá spænsku konu þessari, fyrir afnot af sólinniCool.

  Bæði bara hina "sólríku" spænsku konu að

  "loka fyrir" sólina hvað sig varðaði, því peninga

  frá húsfreyju fengi hún aldreiTounge!

  Sú spánska mætti þá skreppa í eina

  sjóðandi heita ferð til sólarinnar að finna

  "off-takkann" til að hegna leiðindaliði sem húsfreyju

  sem neitar að borgaDevil.

  Altént ekki fyrr en við vitum hvernig fer með

  "kerlingarhelvítið hana Ísbjörgu"Whistling.

  Jamm.

  Flest má nú einkavæða í dag.

  Hefur engum dottið í hug að "einkavæða" andrúmsloftið

  hér á móður JörðHalo?

  Rukka síðan grimmt fyrir hvern "andardrátt" sem við drögum að okkur,

  koma á "andadráttarkvóta" í einum hvínadi hvelli með sérstökum

  græjum sem tengdar eru við brjóstkassa okkar mannveranna,

  og setja á "aukagjald" fyrir hvert skipti sem við færum 20

  andadrætti fram yfir kvótannDevil!

  Einkaréttshafi andrúmslofts myndi mala gull á öllum íþróttamótum,

  fótboltaleikjum, hryllingskvikmyndahátíðum og.... jamm reyndar

  allar nætur þá mannkyn brasaði við að fjölga sér....dodoið gæti orðið rándýrtWink.

  Yrði auðveldlega ríkasti maður heims á nó tæmW00t!

  Jaso.

  Hmmm....kannski að húsfreyja skreppi til ferða og athugi hvernig

  málum sé hagað í "einkavæðingu" hér á landiLoL.

  Góðar stundir, njótið vetrarsólar og dragið djúpt að ykkur andann.

  Það er svo hollt og gott..... og ódýrt... eins og erGrin.


mbl.is Sólin einkavædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband