Hefði verið nær...

crazy-hair  ...að bjarga húsfreyju frá því að

  rigna niður í HúsdýragarðinumLoL!

  Þar var allt blautt, blautara, blautast

  í dag þá húsfreyja brá sér til ferða með

  8 ára djásninu og Rakel vinkonu djásnsinsGetLost.

  Þær höfðu gallað sig upp í stígvél,

  regnföt, húfur og vettlinga og voru

  að "drepast úr svita", á meðan húsfreyja

  var krókloppin, blaut og hrakin í sinni

  þunnu sumarregnkápu.

  Brrrrrrrr!

  Er ekki að koma SUMAR hér á þessu skeri

  úti á rúmsjó?

  En aftur að Húsdýragarðinum.

  Selirnir voru í mat...og húsdýragarðskattarrófan

  líka.  Sú læða telur matartíma selanna vera sinn

  prívatmatartíma, og er stórmóðguð ef gleymist

  að snöfla í hana smásíld!

  Kiðlingarnir stóðu fyrir sínu, en geitamamma

  gaf "hland" í áskoðendur, með tilheyrandi

  hlandstybbu og flæðandi gulum vökva niður

  á gólfSick.

  Hrúturinn var í ham í kindakofanum, svo

  ein ærinn sá ástæðu til að segja honum til syndanna,

  með óvenju "djúpu og langdregnu jarmi"...sjálfur

  "deep throat" hefði orðið stoltur af svona frammistöðuDevil!

  Vinkonurnar átta ára, veinuðu af hlátri.

  Hestunum var vorkennt ægilega, graslausum og hundvotum

  úti í regninu, en risakleina var svo tekin með stæl ásamt

  fullum bolla af kakó með rjóma af átta ára djásninu,

  á meðan Rakelin náði súkkulaðiköku og 3 sopum af kakói.

  Húsfreyja lét sér nægja súkkulaðismáköku og vatn.

  Eitthvað stytti upp eftir hringekjuferð, þar sem átta ára

  skvísur röltu á milli tréhrossa, príluðu og hlógu, og lestarferð

  með tilheyrandi klukkuhringingum.

  En þá var líka verið að loka garðinum, svo heim var haldið.

  Húsfreyja eins og illa reytt hæna um háriðW00t, enda

  hafði hárblásari gefið upp öndina þá fósturdóttir

  hafði brúkað hann fyrr um daginn, og regnið í

  Húsdýragarðinum hafði heldur slegið í reytta hænulúkkið!

  Svo það var verslaður nýr hárblásari með hraði í

  Hagkaup, ásamt ýmsum fínum hárvörum.

  Bóndi svo í "óvissuferð", og er húsfreyja óviss

  um hvar hann sé niðurkominn, og hvenær

  hans sé að vænta aftur heim.

  En kompjúterinn hefur hún alveg út af fyrir sig...hahCool!

  Kvöldmatur næst.

  Góðar stundir í vorregninu!


mbl.is Óþörf björgunaraðgerð í Gróttu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband