KREPPAN BÚIN!

  Horse%2BPictures%2B%252851%2529Alveg er húsfreyja úti að skíta með alla hlutiPinch.

  Hjálpi henni allir heilagir.

  Jeminn og jedúddamía, eins og fínu frúrnar sögðu í gamla daga.

  Missti af sjálfum "kreppulokunum"Pinch, húsfreyja.

  AF KREPPULOKUNUMW00t!

  Kreppan er ekki bara búin, heldur er hún "NEFNILEGA búin",

   og sjálfsagt ekki seinna en korter yfir sjö í morgunWhistling.

  Og húsfreyja veit ekki neitt.

  Minna en ekki neittShocking.

  Hélt í allan dag í vinnunni að hún væri stödd í miðjum

  djö... kreppuniðurskurði í heilbrigðiskerfinuAngry.

  Væri að vinna fleiri og fleiri verk um leið og hún

  sligaðist af auknu álagi og ábyrgð á

  mun lægri launum en fyrir kreppuCrying.

  Hljóp hraðar og hraðar svo svitinn rann í lækjum niður eftir baki hennar.

  Fékk korter í mat, og aðeins skammtað hálft hrogn og 1/6 af lifur með einu

  þunnum bita af fiski....fór aftur að matarpottunum

  og lét sig ekki fyrr en hún fékk annan skammt aukalega...mínus fiskur...

  var búinnTounge.

  Hrikalega erfitt að hlaupa glorsoltinnWink.

  Upp á deild aftur.

  Landlæknisembættið mætt í pillueftirlit ofan á stofugangHalo!

  Húsfreyja með marga ljúfa heimilismenn á sínum snærum

  með ýmis mál í gangi:

  Tvo hjartabilaða, tvo órólega, tvo kallandi, tvo með harðlífi,

  tvo með niðurgang, þrjá slappa og syfjaða og vildu ekki í æfingar,

  þrjá með húðvandamál, einn sem var pottþéttur á því að

  "elding hefði skemmt rafmagnskapal inni á vakt"Wink,

  einn með símavandamál, einn með dauða peru í loftljósi,

  önnur pera blikkandi á vegg, þrír ættingjar í símanum,

  einn ættingi mættur í eigin persónu, læknirinn í RAI-inu,

  húsfreyja að leysa úr málum heimilismanna og ættingja,

  sinna skráningarskyldu, panta rannsóknir,

  redda mönnun vegna veikinda næsta dag

  og skrifa meðmælabréf.

  Svona "þokkalega ROSALEGA mikið" að gera, en húsfreyja hjóp bara hraðar,

  enda taldi hún víst að ekkert þýddi annað, þar sem hún væri stödd í

  myljandi kreppu og niðurskurðiErrm.

  Neipp!

  Kreppan er nefnilega búinW00t!

  Húsfreyja er vesalings fáráður og utangátta hænuhaus sem

  VEIT nákvæmlega ekki neitt um það sem er að gerast í kringum hanaShocking.

  Nada!

  Nichts!

  Ingenting!

  Núll og nix!

  Missti af kreppulokunum sjálfumShocking!

  Bara sisonaBlush!

  Flaggaði ekki einu sinni í tilefni dagsinsPinch.

  Því síður að hún skálaðiErrm.

  Sendi ekki einu sinni ríkisstjórninni og Dabba skeyti

  með hamingjuóskumFrown.

  Neipp!

  Vissi ekki neittShocking!

  Hélt að Páll Óskar og Eurovision út, væri aðalfrétt dagsinsWhistling!

  Húsfreyja hneigir höfuð sitt að bringu, yfirbuguð af skömm yfir

  eigin sauðheimsku og fávísiFrown.

  Getur vart horft framan í nokkurn mann framarBlush.

  Kreppan er nefnilega búinWizard.

  Hallelúja og Amen.

  Góðar stundir.


mbl.is „Kreppan er nefnilega búin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband