Íslandi stefnt.

  iceland-women-s-t-shirtsJaso.

  Nokkuð fyrirsjáanlegt.

  Mister Brown gerði okkur, íslensku þjóðina og arma fjármálavitleysinga

  í ofanálag, að hryðjuverkamönnum, svo næsta víst var að

  EFTA myndi stefna okkur fyrir að neita að greiða fyrir fáluna hana "Ísbjörgu".

  Lengi hægt að kroppa í sama sárið, ef út í það er farið.

  Ríkisábyrgð eður ei, virðist húsfreyju vera ansi stórt mál,

  þegar kemur að Icesafe.

  Og er ríkisábyrgð þá eitthvað sem skal eingöngu dynja yfir

  frónverska þjóð í kreppu, eða verða þjóðir víða um Evrópu

  gerðar ábyrgar fyrir hruni banka sinnaFootinMouth?

  Er ríkisábyrgð lögleg eður ei?

  Ekki gott að segja.

  Er húsfreyja áhyggjufull vegna stefnu þessarar?

  Nei.

  Þetta mál er komið í vinnslu. 

  Við frónverska þjóðin ágætlega í stakk búin að rökstyðja, þrasa og þrátta.

  Orð eru okkar megin.

  Tíminn mun einnig vinna með okkur, er skoðun húsfreyju.

  Spyrjum að leikslokum.

  En að öðru.

  Húsfreyja horfði á Kastljós líkt og fleiri í gærkveldi, og varð

  hálf bumbult eftir þann þátt.

  Vill gjarnan að fyrrum pappírspésar í bönkum og fyrirtækjum sem

  dunduðu sér við að "lána sér" fyrir, kaupa og

  selja sjálfum sér  "eitthvað óáþreifanlegt",

  og borga sér SJÁLFUM síðan milljónir ofan milljónir

  í þóknun fyrir viðskiptinPinch, geri grein fyrir því í HVAÐ

  þeir notuðu þóknunarpeninga sína.

  Einhvers staðar hljóta þeir aurar að liggja, og væri nógu fjandi

  gaman að vita fyrir hvurn fjandann frónverska þjóðin var

  að greiða á formi "þóknuna" hér fyrir hrunShocking.

  Eru þetta máske risaeign, eins og allur símabransinn í einhverju fyrrum

  austur-Evrópulandinu, líkt og einn ágætur "útrásarvíkingur"

  er sagður eigaWhistling?

  Hótelkeðjur í Dubai?

  Lystisnekkjur?

  Einkaþotur?

  Sumarvillur upp á 2000 fermetra við Miðjarðarhafið?

  Eða eru þetta máske bara þúsundir "fyrirtækja til húsa í póstkössum" á

  TortólaDevil?

  Nei, húsfreyja vill bara gjarnan fá að vita, hvað varð um

  alla þessa peningaWhistling.

  Veit að það flökrar ekki að "eigendum" þeirra, að skila þóknunum þessum

  aftur til bankanna og þjóðarinnar.

  Og það þó þjóðin sé eitthvað

  ósátt við að "eitthvað óáþreifanlegt" sé svona fjandi

  dyrt að höndla með, að það rúlli upp heillu bönkum og fellii

  tvist og bast og setji heilu þjóðirnar á hausinnPinch.

  Neipp.

  Húsfreyja var rasandi eftir Kastljósþátt þennan.

  Að höndla með "óáþreifanleika" er þjóðinni gjörsamlega GAGNSLAUS viðskipti,

  og ekki nóg með það, slík viðskipti skaða orðstý þjóðarinnarErrm.

  En út að ganga í frostinu næst.

  Góðar stundir og látið ekki fáluna hana Ísbjörgu eyðileggja

  fyrir ykkur jólaskapið.

 


mbl.is ESA stefnir Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband