Röng höfn á röngum stað með rangt hannaða...

 IMG 0313 ..hafnargarðaPinch.

  HEYR, HEYR, Halldór Nellet.

  Þessu er húsfreyja innilega sammála, og man enn

  hve rasandi hissa hún var, þá hún í fyrsta sinn kom í

  Landeyjahöfn.

  Einhverra hluta vegna hafði húsfreyju ekki dottið í hug

  annað, en að höfnin yrði byggð nokkrum kílómetrum

  vestar en hún nú er, taldi næsta víst að brúarsmíðasnillar allir

  vildu forðast það í lengstu lög að lenda í ósi MarkarfljótsWhistling.

  Enda um stórfljót að ræða, 100 km langt og með

  vatnasvið upp á u.þ.b. 1070 ferkmW00t.

  Þokkalega gott magn af framburði jafnt og þétt,

  alla daga, allar vikur, alla mánuði, árum saman,

  því fylgjandiHalo.

  Svo húsfreyja nánast missti andlitið ofan í skóna sína

  af undrun, þegar hún ók "meðfram Markarfljóti" afleggjarann

  frá Þjóðvegi 1 á leið niður að LandeyjarhöfnShocking.

  Trúði ekki sínum eigin augum, og spurði systur í Eyjum

  tvisvar, hvort þetta væri "í alvöru" Markarfljót þarna

  hinum megin við varnargarðinn.

  Systir í Eyjum taldi svo vera, dæsti mæðulega og rýndi

  út í þokukólguna og regniðErrm.

  Ekki mjög sjóhraust systir í Eyjum.

  "Í ALVÖRU?  Í ALVÖRU"?, var síðan það eina sem systir

  í Eyjum fékk upp úr húsfreyju, það sem þær áttu eftir

  af ferðinni niður að höfninniCrying.

  Húsfreyja var miður sín, þegar hún horfði á eftir litlu systur

  inn í Herjólf í Landeyjahöfn þennan regnvota sumardag.

  Sjór var úfinn og grár, stíf austanátt og rétt að það móaði

  í Eyjarnar í gegnum gráan regnsortann.

  Húsfreyja taldi nánast öruggt, að Herjólf tæki niður í

  hafnarmynninu, hvolfdi með hraði og hún sæi síðan systur úr

  Eyjum svífa nánast gegnsæja á hvítum vængjum

  upp úr dallinumHalo, og hverfa sjónum hennar í

  þokunni við hæsta tind EyjafjallajökulsErrm.

  Sendi verndarenglum systur bæn í huganum...

  Hún lokaði augunum af angist þegar Herjólfur

  ruggaði og tók dýfur út úr höfninni, en til allar

  lukku voru verndarenglar systur í Eyjum vel staðsettirGrin,

  og dallurinn komst á haf út.

  Systir í Eyjum hefur allar götur síðan forðast að sigla

  í Landeyjarhöfn, eða frá henni, ef hún hefur annan kost.

  Smellir sér í flugið eða siglir á Þorlákshöfn, bjóði Herjólfsfólk

  upp á slíkt.

  Miðað við ferjuumferð í Laneyjahöfn frá því að höfnin var

  opnuð, þykir húsfreyju auðsýnt að þjóðráð væri að

  FLYTJA höfnina slattakorn í vestur, eins og reynsluboltinn

  Halldór B. Nellet  metur að sé skynsamlegt.

  Hitt draslið í ósum Markarfljóts, má svo bara nýta sem

  sand- og aurgildru, þarf ekki einu sinni að rífa það niður....

  nú eða breyta því  í "hrísgrjónaakur" öðrum kostiTounge.

  Jamm, en þangað til eru Eyjamenn í djúpum hvað varðar samgöngur,

  og verða fjölmenna í mótmælagöngur og raula;

  "Röng höfn á röngum stað með RANGT hannaða hafnargarða...jejejeErrm"

  undir lagi Sólstrandagæjanna "Ég er rangur maður, á röngum tíma,

  í VITLAUSU húsi... jejeje.WinkVestmannaeyjar fyrir gos.  Siggi á Eiðum"!

  Húsfreyja sendir Eyjamönnum öllum enn og aftur baráttukveðjur.

  Þetta "Landeyjahafnarsamgöngumálaklúður" er þeim ekki boðlegt.

  Góðar stundir.


mbl.is Landeyjahöfn á röngum stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband