Við eigum öll að sitja við sama borð.

 page108_1                                                     HEYR, HEYR, Páll Óskar.

  Í háþróuðu samfélagi manna sætu allir við sama borð,

  hver undi glaður við sitt.

  Staðreyndin er samt sú, að við búum ekki

  í neinu slíku samfélagi, svo þörfin fyrir

  gleðigöngur, tunnubarning og bara yfir höfuð

  skipulögð mótmæli til að þrýsta á jafnræði og réttlæti

  verður ætíð til staðar.

  Og flott hjá Palla að "sparka" hressilega í

  öfgamenn.

  Öfgar aldrei til góðs, að mati húsfreyju.

  Góðar stundir á sumarlegum ágústdegi.


mbl.is Mikil umræða um orð Páls Óskars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála.

CrazyGuy (IP-tala skráð) 8.8.2011 kl. 15:37

2 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Frabært að það megi sparka í miðaldra, kristna, hægrisinnaða, hvíta karlmenn. Skammbyssur finnast reynar fáar á Íslandi en það er aukaatriði.

Guðmundur St Ragnarsson, 8.8.2011 kl. 17:55

3 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka, CrazyGuy. 

Guðmundur, ég hélt að ég væri að tala um þetta spark hér..."stundum er þessi karlmaður með Biblíuna í annarri hendi og byssuna í hinni", bið þig velvirðingar ef þú hefur skilið mig á annan máta.  Hef ekkert á móti miðaldra, hægrisinnuðum, kristnum, hvítum karlmönnum yfir höfuð...bý reyndar með einum slíkum og á með honum barn.  Öfgamanninn með trúarritið og byssuna á lofti má hins vegar sparka í mín vegna, hvort heldur hann er hvítur, svartur, gulur, rauður, hægri sinnaður eða vinstri á hvaða aldri sem er og fylgjandi hvaða trúarbrögðum sem er, erða trúleysi.

Þakka ykkur kommentin og innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 8.8.2011 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband