SKÚBB dagsins...

redneck-garage  ...nei, vikunnar...eða kannski alls ársinsCool.

  Vita Jóhanna og Steingrímur af þessu?

  Stjórnarandstaðan?

  Og kannski þeir sem er mest um vert að fái fregnir þessar:

  Snillarnir í bönkunum okkar!

  KREPPU LOKIÐ!

  PIFF-PAFF-PÚFF!

  Rokin út í veður og vindWhistling.

  Eins og fyrir TÖFRA!

  Meira segja "bankar-beina-leið-til-helvítis-dómurinn" um ólögmæti

  myntkörfulána, er ekkert mál samkvæmt þeim "alþjóðlegu"!

  Bara fínt mál, en þeir vísu dómarar er kváðu upp um

  myntkörfulánin, verða að klára dæmið og

  "fræða" bankasnillana um hvernig sé best að draga úr

  "skellnum", þá þeir ná botni í Víti!Devil

  Því auðvitað fer allt til helvítis hjá bönkunum, verði þeir

  að gefa myntokurlánin eftir, það segir sig sjálft...altént ef þú heitir GylfiGrin!

  Komi heimilinum vel!

  Bjargi þeim jafnvel frá gjaldþroti og upptöku fasteigna!

  Það er aukaatriði segir bankavís Gylfi.

  Aðalatriðið er að redda bönkunum, koma þeim aftur í myljandi

  gróða, svo hægt verði að greiða út "hagnað reglulega",

  "jólabónusa",  "sumarbónusa", "ferðabónusa" og "afmælisbónusa"

  jöfnum höndum til stjórnenda bankannaWhistling.

  Svo er lágmark að menn eigi einn krúttlegan 140 fermetra sumarbústað

  séu þeir í stjórn banka, og komist í góða laxveiðiá 4 vikur á sumriHalo.

  Þeir "alþjóðlegu" telja afnám myntkörfulána ekki þurfa að þýða

  "dauða og djöful" fyrir íslenska banka, því síður bankahrun í öðru veldi.

 Verði þeim erfitt, en ekki ómögulegt.

  Sá sem er heimilislaus hins vegar, atvinnulaus og kominn í greiðsluþrot

  er ekki að koma með fé inn í bankana, þvert á móti.

  En hitt er svo annað mál, að húsfreyju þykir "þeir alþjóðlegu"

  með bjartsýnari einstaklingum á yfirborði móður Jarðar,

  ef þeir telja oss arma fjármálavitleysinga út í miðju

  Ballarahafi "búna með kreppuna"Pinch.

  Mörum svona í "hálfu kafi" enn um skeið, er mat húsfreyju....

  og svo er auðvitað alltaf sá möguleiki fyrir hendi að bankarnir

  fari beina leið til helvítis, þrátt fyrir kreppulok...altént

  ef þú heitir GylfiTounge.

  En Frónbúar til lukku með "kreppulokin" allir sem einn.

  Betra ef satt væri.

  Þá er bara að skella sér í það að gera 28. júní að

  "almennum frídegi" um alla ókomna tíð, hér uppi á litla Fróni,

  og halda árlega upp á hann..."KREPPULOKAHÁTÍÐ"

  ala "Goslokahátíð Eyjamanna"GrinTounge!

  Góðar stundir og enn og aftur til lukku með "lokin"LoL!


mbl.is Kreppunni lokið segir AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

16. júní, dagurinn fyrir þjóðhátíðardag reyndist vera mikill vendipunktur á leið til réttlætis í kjölfar fjármálahrunsins. Hvernig væri að þessi dagur yrði framvegis kallaður myntkörfudagur? Svona svipað og bjórdagurinn 1. mars... ;)

Guðmundur Ásgeirsson, 29.6.2010 kl. 10:16

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Alveg hreint brilliant hugmynd Guðmundur...og við tökum máske framvegis að okkur að "útspökulera" nýja almenna frídaga fyrir Frónbúa..hehehe?!

Sigríður Sigurðardóttir, 29.6.2010 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband