Prump í eilífðinni!

MotherEarth  En á eftir góðum freti kemur

  kemur gjarnan langvinn "steinsmuga"Blush.

  Drulla!

  Niðurgangur!

  Hvimleiður déskoti, fúll og ill lyktandiAngry.

  Án þess að gera lítið úr loftlagsbreytingum og

  áhrifum þeirra, vill húsfreyja meina að mannfólkið

  hafi mun betur tök á því að ráða fram úr

  "efnahagsprumpi" og "bankahrunsdrullu með mergjuðum

  útrásarniðurgangi", en að ná tökum á sjálfri "Móður Náttúru"Halo!

  Sé litið aftur til "eilífðarinnar" og tekin nokkur sekúndubrot

  af jarðsögunni til skoðunar,

  kemur í ljós að "Móðir Náttúra" hefur um all margra milljóna árabil

  verið að "hlýna" eða "kólna" á víxl....svona eins og

  gengur í sögu lítils hnattar á sveimi um sóluJoyful.

  Maðurinn er í þeirri "elífðarsögu" aðeins nýfætt barn,

  enn að reyna að venja sig af bleiunni, og þekkir aðeins

  þessa einu móður...Móður Náttúru.

  Gæði hennar og gjafmildi.

  Fegurð hennar og tign.

  Ofsa hennar og bræði.

  Að blessað bleiubarnið hafi einhverja "stjórn"

  á "móðurinni"?

  Glætan!

  En að rækta garðinn sinn,

  endurvinna "barnadótið",

  og draga úr mengun, er bara gott mál.

  Það getum við "bleiubörnin".

  "Móðirin" ER  hins vegar náttúruöflin.

  Allsráðandi.

  Óbugandi.

  Hún mun "breyta sínu loftslagi".

  Hún mun hrista okkur og skekja upp á 8, 0 á Richter.

  Hún mun flæða.

  Hún mun gjósa.

  Hún mun skapa ný lönd...og hún mun eyða öðrum.

  En það má sosum alltaf reyna að "hemja" móðurina

  í brjáluðum ham.

  Húsfreyja er ekki ýkja bjartsýn um árangurinn.

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Kreppan eins og prump í eilífðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband