Vatnsósa brunnin kirkja og það sjöunda.

2869815984_3ed8f0de6e  Húsfreyja datt í góðan krimma

  eftir Árna Þórarinsson nú á dögunum.

  "Sjöundi sonurinn", er nafnið á þeirri ágætu

  bók.

  Er bókin bráðskemmtilega skrifuð, og

  er að mestu leyti látin gerast á Ísafirði,

  þar sem brunavargar og morðingjar vaða uppi

  með djöfulgang og læti....og sjöundi sonurinn er

  aldrei langt undanWink.

  Og svei, ef húsfreyju er ekki farið að dreyma um

  ferðalag til Ísafjarðar eftir lestur þennan.

  Í bókinni er einmitt komið svolítið inn á

  kirkjubrunann 1987 hjá þeim Ísfirðingum, en

  þá gömlu kirkju barði húsfreyja augum á því

  herrans ári 1976, frekar en '75 í skólaferðalagi.

  Man húsfreyja enn kyrrláta reisn gömlu kirkjunnar,

  og þótti gott að kirkjan hinn brunna og gamla,

  skyldi tekin niður og "geymd" á góðum

  stað, ef til kæmi að bærinn sæi sér fært að

  endurreisa hana, þá góðæri skylli á þar vestraWhistling.

  En lítið hefur ENN bólað á "góðæri", hlutabréfagróða,

  kvótasukkeríi eða útrásarfirringu í þeim góða bæ Ísafirði,

  þótt dansinn í kringum gullkálfinn hafi verið stíft stiginn hér

  á banka- og útrásarvíkingaslóðumShocking.

  Og er nú svo komið að kirkjan hin reisulega, en brunna,

  er komin á bólakaf í vatn og aur, og næsta víst að

  merkingar á kirkjuspítum öllum fari að renna út og eyðast.

  Gæti þá reynst efitt að endurreisa gömlu kirkju þessa,

  þá kreppa hjaðnar, og Mammon brosir við oss að nýju.

  Hund asskoti fúlt allt saman, og ekki ráðlegt að geyma

  gamlar reisulegar kirkjur á árbökkum...og það þó þær séu brunnar

  niður í frumeindir sínar.

  En að öðru.

  Sjöundi sonurinn, sem þó er ekki sjöundi sonurinn,

  heldur sjöunda barn foreldra kemur þó nokkuð við

  sögu Árna.

  Húsfreyja var ekki gömul, þá hún heyrði fyrst um

  að "sjöundi sonur" eða "sjöunda dóttir" fæddust með

  sérstaka hæfileika....séu jafnvel útvalinWizard.

  Móðir húsfreyju er "sjöunda" dóttir föður síns, og

  leggur jafnan á borð fyrir 5 gesti, þó aðeins 3 komi

  í kaffi.

  Sver upp á æru og trú, að 5 gesti hafi hún séð,

  þó ekki hafi nema 3 þeirra hafi hellt í bolla sína og drukkið kaffiðWhistling.

  Berdreymin er hún sömuleiðis, og hreinlega dreymir

  atburðina eins og þeir gerast.

  Hér á landi skiptir það yfirleitt foreldra litlu,

  hvort þau eignast drengi eða stúlkur.

  Flestöll börn velkomin og elskuð, alveg óháð kyni.

  En svo var húsfreyja að lesa um manngarm,

  föður á Indlandi sem er allóhress með það

  að eiga "aðeins" 7 dæturGetLost.

  Svo miður sín er maðurinn að hann hefur eigi

  þvegið af sér skítinn í 35 árSick.

  Og það þó að "sjöunda dóttirin" hafi sérstaka

  hæfileika...sé jafnvel "útvalin".

  En þrátt fyrir 35 ára "skítsöfnun" hefur manni

  þessum ekki tekist að eignast drengPinch.

  Telur húsfreyja að dæturnar hljóti að hafa erft

  "nefsjúkdóm" frá móðurinni, og hafi þær ekkert

  lyktarskyn, á meðan stenkurinn af föðurnum

  nær svo alla leið upp í "Sólarlandið allra ófæddra barna".

  Þar sem mögulega, væntalegir synir hans eru "grænir"

  á hörund af lyktarmengun, og því sífellt að fresta

  "för" sinni niður til móður jarðar, og í hendur

  indverska föðursinsDevil.

  Jamm, en þetta var svona flogið úr einu í annað....

  og mest upp á grín.

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Gamla Ísafjarðarkirkjan umflotin vatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband