Hálfkláraðar byggingar nýmæli?

skyline  Síðan hvenær?

  Húsfreyja man eigi betur en að

  þá hún fluttist til Þorlákshafnar,

  einn herlegan vetur á því

  Herrans ári 1973, stæði eitt

  fátæklegt, ópússað kjallarahró,

  meira svona hálfgerður "grunnur"

  að húsi, þar sem fínasta flott

  ráðhús stendur í dag.

  Og þar stóð kjallaraskonsan

  árum saman....og árum saman...

  var húsfreyja búin að skrifa ÁRUM SAMAN?,

  og þjónaði bæði hlutverki félagsheimilis

  og íþróttahússW00t.

  Samt var svo lágt til lofts í "íþróttasalnum",

  að við krakkarnir máttum gæta þess að

  reka okkur ekki undir loft í heljarstökkum

  og leikjum, og hávaxið fólk hreinlega "gat

  ekki" stundað líkamsæfingar og leiki í salnumWink.

  Svo lágt var til lofts, að þegar haldin voru

  Þorrablót og aðrar skemmtanir (í "sama sal"

  og við krakkarnir stunduðum leikfimi), að

  þétt "grátt" reykingaský myndaðist, sem var

  dimmara en svartasta AustfjarðarþokaErrm

  Þekkti enginn maður annan, fann engan

  er hann þekkti og allra síst kærasta eða kærustur.

  Gift fólk þekkti maka sína á "röddinni" einni samanTounge.

  Svo fólk í tilhugalífi skipti um kærasta og kærustur

  á þessum "þokukjallaraárum" í Þorlákshöfn,

 eins og aðrir skipta um sokka......var bara

  næsta líklega skvísa eða gæi gripinnInLove.

  Og sjaldgæft að nokkur maður undir 24 ára

  aldri færi einn heim af balli....þrátt fyrir að

  allt annar einstaklingur hefði verið "viðhengi" í upphafi dansleiksLoL.

  Hehehe, en þetta er nú bara smá "útúrdúrssöguskýring"

  hjá húsfreyju, og ef til svolítið orðum aukinGrinDevil.

  En breytir ekki því að, kjallarahróið máttu

  Þorlákshafnarbúar láta sér að góðu verða

  alla tuttugustu öldina.

  Minnir húsfreyju að "ráðhúsið fína og flotta" hafi

  ekki verið vígt fyrr en við upphaf þeirrar 21.

  Nærri því þrjátíu ár í hálfbyggðu húsi.

  Jamm, svo hvaða læti eru þetta út af

  hálfkláruðum húsum niðri bæ, spyr húsfreyja!

  Langt í það að komin séu 30 ár

  í slugs, kreppu og byggingarbið og að árið 2039 renni upp!

  Þá geta sko menn farið að kvarta fyrir ALVÖRU!

 

 

 

 
mbl.is Táknmynd góðæris eða kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

"almennilegar" skemmtanir í Þorlákshöfn á árum áður

Sigrún Óskars, 18.1.2009 kl. 10:39

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Já, þær voru sko "almennilegar", og svolítið "gráar" og "augnasúrnandi" í minningunni.

Sigríður Sigurðardóttir, 20.1.2009 kl. 14:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband