Bitlaus vopn.....

santaSmall... og léleg "þess í neðra",

  svo ekki sé meira sagt,

  séu þetta einu vopnin sem sá

  vondi hefur yfir jólahátíðinaWhistling.

  Eða hvernig ætli Knudsen hinn danski,

  telji að djöfsi brúki jóladverga þessa?

  Grýti þeim fólskulega í hausinn á dönum,

  svo annar hver Bauni hljóti af fjólurauð

  glóðaraugu, blóðnasir og brotnar tennur yfir Jólin?

  Skelli þeim undir óæðri endann á prestastéttinni

  í jólaboðum, svo þeim bregði hressilega, og missi

  jafnvel út úr sér:  FO' FANDENDevil?

  Og síðan hvenær hafa jólin ekki verið blanda

  af heiðnum og kristnum sið?

  Altént man ekki húsfreyja eftir því að

  Jesú frá Nasaret hafi haft ljósum prýtt

  grenitré inni í fjárhúsi sínu á hinni

  fystu "kristnu" jólanótt.

  Það hefur þá verið "yfirstrikað" í Biblíu

  húsfreyju, hafi verið greint frá slíku þarDevil.

  Minnst á pálmagreinar jú, en ekki eitt einasta

  orð um grenitré!

  Telur húsfreyja að, þeir er hafa mikla trú á

  tilvist "þess í neðra" væri nær að beina sjónum

  að hnífum, byssum, sprengjum og þess slags

  dótaríi þegar kemur að "verkfærum" hans.

  Og huga að mannlegu eðli, því í því liggur

  þörfin til að skaða aðra og drepa.

  Leggja svo áhersluna á kærleik, gleði,

  mannúð, virðingu og frið.

  Djöfsi má svo eiga sig, enda tær uppspuni

  frá upphafi til enda, rétt eins og Grýla og

  Leppalúði, gróði útrásarvíkinga og hjálp

  ríkisins til alþýðu í kreppunniTounge.

 

 


mbl.is Vill banna jólasveina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

ó nei

halkatla, 1.12.2008 kl. 17:49

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Sigríður Sigurðardóttir, 2.12.2008 kl. 17:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband