BROS dagsins...

cute_animals_011  ...til þeirra fyrir norðanGrin.

  Og fyrirtaks hugmyndWhistling.

  Húsfreyja er búin að skella

  síðustu þúsundköllunum sínum

  í blýkassa, og ætlar að út að grafa

  hann í jörðu, nú í frostinuDevil.

  Hún á þá altént smá sjóð

  þá tekur að þiðna í vor......nema

  að búið verði að henda krónunni

  út í hafsaugaW00t!

  Björgólfur Guðmundsson fyrrum

  stjórnarformaður Landsbankans er

  heitur út í krónuræfilinn, og segir hana

  vera stærsta vandamáliðShocking.

  Svo talar hann um eitthvert "kaupæði"

  sem á að hafa runnið á íslensku

  þjóðina.

  Jamm, það æðið hefur eitthvað illilega

  farið fram hjá húsfreyju, öllum hennar

  vinnufélögum, ástvinum og vinum.

  Virðumst bara alls ekki hafa verið "memm"Pinch.

  Hverri krónu velt á milli fingranna, ekkert

  nýtt keypt í innbúið, nema það gamla hafi

  hreinlega verið "ónýtt"!

  Og djásnið húsfreyju, fékk yfirleitt aðeins

   ný föt tvisvar á ári þá útsölur buðu upp á

  góðan barnafatnað á viðráðanlegu verði.

  Föt á sjálfa sig verslaði húsfreyja í smáum

  stíl annað hvert ár....og bóndi sömuleiðis.

  Enda verið að kaupa þak yfir höfuðið,  á

  verðtryggðu vaxtaláni....og hver á afgang

  þáErrm?

  Ekkert  farið erlendis í heil sjö ár, ekki fyrr

  en bóndi fékk nóg af litla Fróni, þá djásnið

  var 6 ára, og skroppið var í 2 vikur til Kanarí.

  Og flestir þeir er húsfreyja hefur umgengist

  í sínu lífi, virðast einnig alveg hafa misst af kaupæði

  þessu.  ALGJÖRLEGA!

  Ef til vill er Björgólfur þá að tala eingöngu um

  sig og sína vini, sem "þjóðina" í brjáluðu

  kaupæði?  Eða alla þá sem hann þekkir?

  Og hvað var þá keypt?

  Eitthvað verðmætt kannski?

  Má þá kannski "selja" eitthvað af því

  dótaríinu upp í skuldirHalo?

  Eða er kannski Björgólfur og vinir hans

  í svipuðum framkvæmdum og "kaupæði" og fyrrum

  stjórnarformaður "staurblanks" Kaupþings?

  Sá ágæti maður, Sigurður Einarsson, virðist

  ekki vera í vandræðum með "krónuna" sem

  gjaldmiðil, og er að reisa sér "eitt lítið og nett"

  sumarhús í Norðurárdalnum.

  Þar sánur, vínkjallari, 4-5 herbergi með

  4-5 baðherbergjum, eldhús inni, grilleldhús

  úti á suðurpalli, 20 manna borðstofa og

  svo lítil nett stofa.

  Eða svo segir DV.

  Og áfram heldur DV og segir frá "dúllulegu"

  húsnæði í London, sem Sigurður borgaði út í hönd.

  Bara smotterí:  "TVO MILLJARÐA" íslenskra krónaWhistling.

  Jamm, honum vannst vel úr 170 milljónunum sem

  hann fékk í árslaun hjá Kaupþingi, honum Sigurði.

  Jæja, en blessaðir  fyrrum bankaöðlingarnir eru sjálfsagt

  "miður sín" yfir öllu klúðrinu, og veitir ekki af heitri

  sánu, 200 ára gömlu rauðvíni og 20 manna

  veislu á hverju kvöldi til að róa útjaskaðar

  "krónutaugarnar" og jafna sig á helv.....

  ruglinu í íslenskum stjórnvöldum, sem hafa "leyft"

  þessu að ganga svona langt á "vandamála krónu"Angry.

  Það er ekki við þá sjálfa að sakast......Devil.

 

 

 


mbl.is Innstæður frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband