Hann þarf að komast á vinstri löppina....!

soccer-photography_crop_340x234 .....,sjónvarpsmanni var mikið niðri fyrir, er hann

  mælti þau fleygu orð.

 "Þvílík háheilög sannindi" hugsaði húsfreyja hróðug og glotti grimmt,

  þar sem hún sat og "hlustaði" á lýsingu fótboltafróðra

  manna á kreppu-flatskjánum sínum.

  Húsfreyja ELSKAR að "hlusta" á lýsingar fótboltaleikja á skjánum.

  Þar þeysa menn um víðan völl í orðsnilld og íslensku tungutaki,

  svo unun er á að heyraDevil.

 - "Englendingar standa og veifa hendinni", sjónvarpsmenn létu hvergi

  deigan síg í lýsingunni.

  "Og Englendingar eru þá allir "handalausir" nema einn,

  sem aðeins hefur EINA" hló húsfreyja hið innra með sér, "og henni

  veifa þeir grimmt....allir sem einn".Tounge

 - "Mér finnst að skyttur eigi að "hitta" markið þegar þeir eru

  komnir inn fyrir marklínu", sjónvarpsmaður  sár yfir getuleysi leikmanns

  við að skora.Errm

  Húsfreyja veinaði af hlátri.LoL

 - "Carrol er að reyna að koma inn í leikinn".

  "Ekki seinna vænna", hugsaði húsfreyja, "seinni hálfleikur hafinn,

  og andskotans maðurinn inni á vellinum, en utan leikjar"!

 - "Þeir verða að "taka boltann niður", þeim hefur tekist það

  einu sinni á síðustu 10 mínútum", sjónvarpsmaður ábúðarfullur.

  "Ljótt ef boltinn er bara á sveimi yfir höfðum leikmanna", húsfreyja

  var rasandi á 10 mínúta flugi fótboltans.Halo

  En boltinn hélt áfram að fljúga samkvæmt lýsingu:

 - "Boltinn er að rísa yfir markið...margar mannhæðir".W00t

  "Þeir hafa líklega dælt "gasi" í helvíska tuðruna" var álit húsfreyju.LoL

 - "Englendingar aldrei líklegri til að" búa eitthvað til" þarna frammi",

  sjónvarpsmaður, reyndi að vera jákvæður um frammistöðu breskra.

  Húsfreyja var að míga á sig af hlátri......"hvað voru breskir

  að bardúsa í miðjum fótboltaleik?

  -"Hann er allt of HEITUR", húsfreyja missti af því hvort verið

  væri að ræða boltann eða leikmann.Pinch

 - "Menn hafa átt erfitt með að "fóta" sig allan leikinn",

  húsfreyja var komin í keng af hlátri...."atvinnumenn

  í FÓTbolta í erfiðleikum með að FÓTA sig"!Tounge

  -"Balotelli er dálítið hissa"....."engin furða" hugsaði

  húsfreyja, "ef færustu fótboltamenn heims fóta sig ekki

  á fótboltavellinum"!Devil

 - "Þarna er MAAAAARK......hann er rangstæður, já" mæðan

  í rödd sjónvarpsmanns var nánast áþreifanleg!Errm

 - "Englendingar búnir að vera mjög "þéttir" í leiknum".W00t

  Eina hugsun húsfreyju við þessa yfirlýsingu var:

  "Einhvern tímann var sungið á öldum ljósvakans:

  "NÚ ER ÉG ÞÉTTURLoL, OG ORÐINN FURÐU LÉTTUR,

  ÉG ER Í OFSASTUÐI OG ELSKA HVERN SEM ER".

  En leikurinn var ekki búinn.

  Og sjónvarpsmenn fóru á kostum:

-  "Hér kom stórkostlegt skot, sem leit kannski ekki út

  fyrir að vera það".Shocking

  Og síðan: -" Þarna er hann kannski ekki að "miða" á markið"!Pinch

  "Heldur HVERT og á HVAÐ"??, húsfreyja náði vart andanum svo mikið

  hló hún.Grin

  Þegar sjónvarpsmaður skellti sér síðan í lýsingu á

  "arkitekt" sem skyndilega birtist á vellinum og hóf

  að teikna upp "sóknina", var húsfreyju allri lokið,

  svo hún lagði á flótta inn á bað og fór í sturtu.

  Það síðasta sem hún heyrði var:- "Hann tekur sér nægan

  tíma í markinu, án þess að vera of augljós að tefja tímann...."Whistling

  Fótbolti er tær SNILLD!

  Að lýsa fótboltaleik sérstök NÁÐARGÁFA.

  Húsfreyja vill þakka íþróttasjónvarpsmönnum RÚV kærlega fyrir

 sérdeilis frábæra kvöldstundWink!

  Góðar fótboltastundir.


mbl.is Ítalir höfðu betur í vítaspyrnukeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband