Hvað saðð'ann?

IMG 1591  Marinó Tý fimm ára var mikið niðri fyrir.

  Enda Kafteinn Kolbeinn nýbúinn að ropa ofan

  í flugvélatankinn, á hrapandi flugvélinni, með

  Tinna og Tobba innanborðs, á meðan vondu karlarnir tveir

  svifu til jarðar í fallhlífum.Devil

  Systurdóttir var á 200 kílómetra hraða að þýða og talsetja fyrir soninn,

  því myndin var ekki með íslensku tali heldur texta.Whistling

  Í þrívídd samt.

  Marinó var með rödd sína stillta á HÆSTA styrk, svo

  bíóáhorfendur í fimm bekkja radíus fengu "kommenta" hans beint í æðTounge.

  "Það blæðir líka úr eyrunum á mér", Pinch Væla Veinólínó ekki síður að

  misbjóða viðkvæmum hlustum Marinós en Kafteins Kolbeins.

  "Ó MÆ GOD", Tinni fljúgandi í loftköstum á eftir bófunum,

  í brjálaðri tilraun að ná þremur bréfsnifum.

  "Hvað saðð'ann, mamma"?

  Það var mikið hlegið, og spennan var ærandi í bíósalnum.

  Tinni og Kolbeinn ekki að klikka.

  Náði húsfreyju alveg, myndin.

  "Skeggjaðir hertir þorskhausar" og Rögnvaldur rauði fékk að

  kenna á reiði Kolbeins.

  Húsfreyja hló hátt og mikið, og skemmti sér konunglega.

  Tíu ára djásnið vissi ekki góða stund, hvort hún ætti að vera vandræðaleg

  yfir háværum kommentum Marinós eða gassahlátri móðurinnarBlush,

  en ákvað að lokum að gleyma sér í kvikmyndinni.

  Systurdóttir þýddi og talsetti í gríð og ergGetLost.

  "Ég skil núna, hvað þú gekkst í gegnum með mig, þegar þú

  bauðst mér á Disneyteiknimyndirnar hér í den, Sigga, og þurftir að þýða

  hverja einustu setningu", systurdóttir þurr í munni og sár í

  hálsi í bíólokWhistling.

  Það hlakkaði örlítið í húsfreyju, sem enn er að berjast við

  krónískt hæsi frá árunum 1990-1995 eða 6 Frown, þegar

  einhverjum snillanum í kvikmyndabransanum

  datt LOKS í hug að "talsetja" Aladdin.

  Sérlegur "talsetjari" systurdóttur þessi ár, þegar Disneyfabrikkan

  ungaði út nýjum teiknimyndum jafnt og þéttW00t, einni eða tveimur á ári.

  Hélt uppi Apoteki Þorlákshafnar árum saman með

  Strepsils hálstöflukaupum, húsfreyjaAngry

  Fór með einn Strepsilspakka á sólarhring, í heila viku eftir "talsetningu"

  fyrir systurdóttur.

  Og stundum dugði ekki ein bíóferð...

  "Sidda mín, þetta var frábær mynd, eigum við ekki að fara

  aftur næsta laujardag"?Pinch

  Hefur húsfreyja minnst á það , að henni finnst "íslensk talsetning"

  á barna- og teiknimyndum, einhver mesta snilld sem hefur

  verið upp fundin í voru litla landi.

  En draumar og vonir húsfreyju um frama sem heimsfræg söngkona

  dóu drottni sínum, steindrápust, og voru jarðaðar þessi

  "talsetningarár" hennar með systurdótturGetLost.

  Hins vegar er systurdóttir eldheitur áhugamaður um kvikmyndir í dag,

  allt frá teiknimyndum upp í drama, grín og morðgátur.

  Kannski á húsfreyja örlitla hlutdeild í áhuga hennar þar með,

  fyrst hún fórnaði frægð og frama og RÖDD sinni fyrir

  gleði lítillar stúlku í bíóJoyful.

  Hver veit?

  En vissulega doldið GAMAN að systurdóttir skyldi

  þurfa að "talsetja" sjálfan Tinna fyrir MarinóDevil.

  Finnst húsfreyju..hehehehehe.Grin

  Hefði viljað heyra systurdóttur þýða og talsetja

  enska orðasambandið hans Kaftein Kolbeins: 

  "Þúsund skrykkjóttar tindabykkjur í þorskavíti".....hehehe.Tounge

  Kvikmynd þessi um Tinna og félaga er tær snilld að mati húsfreyju,

  svo kíkið endilega í bíó.

  EN AÐVÖRUN:  Fólk með VIÐKVÆM eyru ætti að

 hafa með sér bómullarhnoðra...til að stöðva

  "eyrnablæðinguna"Tounge.

  Góðar stundir og látið ekki frostið bíta ykkur í tærnar.Devil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband