Norskt ríkidæmi eða arga fátækt?

  Royal+family+Norway"Því fátækari og því minna sem fólk á,

  helst ekki bót fyrir rassgatið á sér,

  því betur líður því andlega og félagslega"!

  Vinkonu húsfreyju í Noregi var mikið niðri fyrir.

  "Alla vega virðist mér norska þjóðarsálin sigla

  hraðbyri í átt til brjálæðis mitt í öllum þessum

  olíugróða sínum.  Hér eiga allir skít nóg af

  peningum, en eru þeir hamingjusamirW00t?

  NEI!

  Kunna þeir að vinna skynsamlega úr sínum málum?

  NEI"!

  Vinkona húsfreyju, íslensk og læknir að mennt, var á innsoginu.

  Hefur búið síðustu 25 árin í Noregi og vegna starfs

  síns kemur hún víða við og þekkir marga.

  Hafði vinkona komið í sumarvinnu upp á litla Frón fyrir rúmu ári síðan,

  hafðið unnið í 3 mánuði, og séð hvernig íslenska

  þjóðin var að reyna að tækla sín mál.

  Bar svo saman þegar heim til Noregs kom.

  Norsararnir skítféllu í þeim samanburðiPinch.

  "Hér til dæmis skilja varla hjón lengur án

  nálgunarbanns, þriggja lögfræðinga, dauðra katta, ofbeldis

  skemmdra húseigna og skelfingu lostinna barna viðkomandi."Errm

  Vinkona var komin í ham.

  "Nú fer ég alvarlega að huga að því að koma mér heim aftur.

  Það er ekki búandi í þessu helvíti, þar sem hver höndin

  er upp á móti annarri.  Og fólk með massív fortíðavandamál

  veður uppi með óunna fortíð, og beitir börnum sínum

  fyrir sig á sérlega grimmdarlegan máta"

  Vinkonu var mikið niðri fyrir, " og svo er sífelldur SPARNAÐUR

  og NIÐURSKURÐUR í gangi í heilbrigðiskerfi einnar ríkustu

  þjóðar heims, og fólk jafnvel í vandræðum með að fá

  þá hjálp sem það þarfnastAngry.

  HVAÐ ER ÞAÐ"?

  Húsfreyja gat lítil svör gefið vinkonu sinni í símann,

  enda þekkir hún lítt til norsks þjóðfélags og uppbyggingu þess,

  og veit þar af síður hvað þeir gera við olíugróðann sinnShocking.

  En vinkona var rasandi á gangi mála Noregsmegin,

  enda gæðin ein að upplagi, vinnusöm, glaðlynd og skapandi í hugsun.

  Húsfreyja leyfði vinkonu sinni að tala sem mest,

  enda lá margt þungt á henni, búandi í miðju veldi

  norska kóngsins, með "brjálsemi" í kringum sig flesta

  daga, eins og hún orðaði þaðGetLost.

  "Ég les ekki krimma eða spennusögur lengur, nóg fyrir mig

  að lesa sannar "lífsreynslusögur" í norskum tímaritum,

  þau ekkert nema kærumál, krimmamál og dómsmál"Bandit!

  Vinkona dró djúpt andann.

  "Ég er búin að sjá, að það fólk sem á lítið sem ekki neitt

  af peningum hérna, heldur fullum sönsum,

  ber virðingu fyrir sjálfu sér og öðrum og

  verndar börn sín í lengstu lög.

  HINIR með nóg af peningum, gefa skít í allt og alla,

  jafnvel börnin sín".

  Vinkona hryllti sig í símann, enda barngóð og móðir sjálf.

  Húsfreyju fundust þetta slæmar fréttir af norskum

  "frændum" sínum og "frænkum", og fann til með

  vinkonu að vera á bólakafi í vondum málum fólksins

  í kringum sig.

   Og nú rúmum tveimur sólarhringum frá upphringingu

  vinkonu, kemur frétt þessi um að fimmta hver kona

  í norska hernum verði fyrir kynferðislegri áreitni.

  Tilviljun?

  Húsfreyja veit ekki.

  En vinkona hafði beðið húsfreyju að skella

  pistli inn á bloggið sitt um málið, og hér er hann kominn.

  Kemur upp í huga húsfreyju gamall málsháttur:

  Margur verður af aurum api.

 Svo mörg voru þau orð.

  Vonandi að norsarar tapi sér ekki alveg í olíuauðlegðinni,

  og temji sér virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.

  En afmæli framundan hjá húsfreyju og fjölskyldu.

  Ísakurinn sex ára, tíu ára djásnið ætlar að

  föndra afmæliskort.

  Húsfreyja ætlar í olíubað og svo út á sinn herlega

  sólpall í 20 stiga hitann Cool svolitla stund.

  Góðar stundir á sumarhlýjum maídegi.


mbl.is Fimmta hver kona áreitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

ja hérna hér

Sigrún Óskars, 7.5.2011 kl. 20:28

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Segðu kollega.  Vinkona er snjöll kona, athugul og hógvær.  Svo hafi henni misboðið ástand mála þarna í Noregi, er næsta víst að eitthvað mikið er á seyði í ríki hins norska kóngs af og til.  Þakka þér innlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 7.5.2011 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband