Sýruhausar í and-Gaddafísku stuði?

  GaddafiAllah sé lof og dýrð...fyrir GaddafíWhistling.

  Hinn skarpvitri og friðelskandi

  "ekki-leiðtogi" Líbíu, Muammar Gaddafí

  er í öngum sínumShocking.

  Þarna er þessi elskulegi maður, Gaddafí

  sem "formlega ber ekkert embætti" í hinu

  undursamlega veldi Líbíu, búin að puða  og púla

  við uppbyggjandi "byltingarstörf" FJÖRUTÍU-ÁRA-BYLTINGARINNAR (síðan 1969, hefur hún

  verið í gangi... ÓGNARLANGA BYLTINGIN væri gott nafnDevil á hana)

  í þágu þjóðarinnar árum saman, og uppsker

  svo ekkert nema vanþakklæti og svívirðingar og grófar móðganir.

  Fékk ekki einu sinni embættiTounge!

  Mótmælendur mættir að mótmæla "ekki-stjórn" GaddafísPinch.

  Ó vei!

  Og slík svívirða frá hans eigin löndum!

  Og til að auka enn á skömmina eru þessir "Gaddafímótmælandi "samlandar

  hans á "mergjuðu sýrutrippi" frá morgni

  til kvöldsW00t, og telja sjálfsagt

  himininn appelsínugulan, sjóinn rauðan og skýin lillableikCool.

  Gaddafí er sár.

  Mættur undir regnhlíf, (svo ekki rigni á hann lillableiku

  regni og appelsínugulur himininn hrynji

  ekki ofan á haus honumGetLost)  og hann

  ekki flúinn af landi brott, með hina

  helgu stjórnarskrá Líbíu á lofti og les mikinnHalo.

  "Gaddafí-ósáttir sýruhausar réttdræpir, Allah sé lofaður".

  Eru hvort eð er á vegum djöfulsins, hinir "ofskynjandi" mótmælendur,

  og því öruggara að drepa þá alla sem fyrst, svo djöfullinn sjálfur

  með horn, hófa, hala og sinn hrikalega þrífork

  verði ekki næsti "óformlegi ekki-leiðtogi" Líbíu.Devil

  Já og Allah forði Líbíu frá því að "sá í neðra" verði næsti

  "yfirmaður ógnarlöngu-byltingarinnar"LoL.

  Jamm, vesalings Gaddafi  er móðgaður.

  Líbanskir sýruhausar kunna ekki gott að meta, því er verr.

  Hinir Gaddafí-elskandi Líbanir munu slá skjaldborg um sinn

  heittelskaðan "ekki-leiðtoga"  og berjast blóðugum bardaga

  til síðasta mannsErrm!

  Og þá og aðeins þá mun Gaddafí fá frið til að halda áfram LANGDREGNUM

  byltingarstörfum sínum og  að sinna "ekki-embættisskyldum" fyrir land sitt og

  þjóðWhistling, eða deyja öðrum kosti.... í LíbíuPinch!

  Jamm mikil er viska og réttlæti Gaddafís, Allah sé dýrð.

  Húsfreyja ætlar að redda kjúllanum úr ofninum.

  Góðar stundir.


mbl.is Gaddafi fer hvergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband